Sensa kaupir Basis Samúel Karl Ólason skrifar 12. mars 2015 13:45 Valgerður H. Skúladóttir, framkvæmdastjóri Sensa, og Alexander Picchietti, framkæmdastjóri Basis.
Fyrirtækið Sensa hefur keypt Basis ehf. og verða fyrirtækin sameinuð undir nafni Sensa. Starfsfólk Basis færist til Sensa, en eftir sameininguna hefur Sensa á að skipa tæplega 150 sérfræðingum á Íslandi í rekstri, hýsingu og samskiptalausnum. Þar að auki vinna 15 manns hjá dótturfélagi Sensa í Danmörku. Basis starfar á sviði rekstrar og hýsingar tölvukerfa. Í tilkynningu frá Sensa, sem er dótturfyrirtæki Símans, segir að sameiningin bjóði upp á stóraukna möguleika á sviði hýsingar og skýlausnar. Kaupverð er trúnaðarmál. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. „Með kaupunum á Basis stóreflum við möguleika Sensa á sviði hýsingar og skýlausna. Basis hefur á að skipa öflugum sérfræðingum sem eru með vottun frá fyrirtækjum á borð við Microsoft, RedHat, Cisco og Fortinet. Fá fyrirtæki hér á landi geta státað af jafn yfirgripsmikilli reynslu af rekstri krefjandi tölvukerfa,“ segir Valgerður H. Skúladóttir, framkvæmdastjóri Sensa, í tilkynningunni. „Það er sjaldgæft, og í raun einstakt, að fá tækifæri til að taka þátt í verkefni sem þessu, með fólki sem hefur sömu sýn,“ segir Alexander Picchietti, framkvæmdarstjóri Basis. „Fyrst og fremst sjáum við tækifæri í að bjóða viðskiptavinum okkar upp á stærra og öflugra þjónustuteymi með jafnvel enn dýpri þekkingu á flóknum tæknilausnum. Sameinuð getum við haldið áfram að bjóða framúrskarandi hýsingar- og rekstrarþjónustu til núverandi viðskiptavina en á sama tíma þróað nýjar og spennandi vörur á síbreytilegum markaði.“
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira