Viðskipti innlent

Afli íslenskra fiskiskipa tvöfaldast milli ára

ingvar haraldsson skrifar
Heildarafli íslenskra fiskiskipa var rúm 222 þúsund tonn í febrúar 2015.
Heildarafli íslenskra fiskiskipa var rúm 222 þúsund tonn í febrúar 2015. vísir/vilhelm
Heildarafli íslenskra fiskiskipa var rúm 222 þúsund tonn í febrúar 2015, sem er ríflega 120 þúsund tonnum meiri afli en í ferbrúar 2014. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands.

Mestu munar þar um að loðnuaflinn jókst úr 56 þúsund tonnum í febrúar 2014 í 180 þúsund tonn í febrúar á þessu ári.

Aflinn í febrúar, metinn á föstu verði, var 34,4% meiri en í febrúar 2014. Á síðustu 12 mánuðum hefur aflinn aukist um 6,9%, sé hann metinn á föstu verði.

Fiskaflinn eykst í febrúar milli ára.mynd/hagstofa íslands





Fleiri fréttir

Sjá meira


×