Viðskipti innlent

Eva Hrönn til Íslensku lögfræðistofunnar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Eva Hrönn Jónsdóttir hæstaréttarlögmaður.
Eva Hrönn Jónsdóttir hæstaréttarlögmaður.
Eva Hrönn Jónsdóttir hæstaréttarlögmaður hefur gengið til liðs við Íslensku lögræðistofuna.

Eva Hrönn er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti Íslands í nóvember 2013. Eva Hrönn starfaði hjá OPUS lögmönnum frá árinu 2007. Sérsvið hennar eru skaðabóta- og vátryggingaréttur, félagaréttur, samkeppnisréttur og verbréfa­markaðs­réttur.

Íslenska lögfræðistofan var stofnuð árið 2008. Lögmenn stofunnar annast alla almenna lögfræðiráðgjöf og hagsmunagæslu fyrir einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir og erlenda aðila. Íslenska lögfræðistofan er með aðsetur í Turninum við Smáratorg í Kópavogi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×