Viðskipti innlent

Markaðurinn í dag: Milljarða fjárfestingar Eimskips

Eimskip hefur ráðist í milljarða fjárfestingar í fimm löndum á skömmum tíma. Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, segir að frekari fjárfestingar gætu verið í farvatninu. Gylfi er í viðtali við markaðinn.

Íslensku bankarnir hafa verið gagnrýndir fyrir mikinn vaxtamun. Úttekt Greiningadeildar Arion banka bendir til þess að þegar íslensku bankarnir eru bornir saman við banka af svipaðri stærð sé vaxtamunurinn svipaður á Íslandi og í Þýskalandi, Hollandi, Bretlandi, Kanada og víðar.

Velta Brimborgar jókst um 1700 milljónir á síðasta ári, en Brimborg hefur birt ársreikning fyrir árið 2014.

Um þetta og fleira er fjallað í Markaðnum í dag. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, skrifar grein um nýafstaðið Iðnþing og Skjóðan og Stjórnarmaðurinn eru á sínum stað. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×