Viðskipti innlent

Enn hækkar fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svo virðist sem aukningin í viðskiptum með íbúðarhúsnæði hafi stöðvast.
Svo virðist sem aukningin í viðskiptum með íbúðarhúsnæði hafi stöðvast. vísir/vilhelm
Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,8% í febrúar, þar af hækkaði fjölbýli um 2% og sérbýli um 0,9%. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans.  

Um er að ræða miklar hækkanir sem koma í kjölfar hækkana bæði í desember og í janúar. Árshækkun fjölbýlis er nú 11,6% og árshækkun sérbýlis 8,1%. Alls hefur fasteignaverð því hækkað um 10,8% síðustu 12 mánuði.

Þar sem verðhjöðnun hefur verið síðasta árið á mælikvarða vísitölu neysluverðs án húsnæðis hefur raunverð hækkað meira en nafnverðið.

Svo virðist sem aukningin í viðskiptum með íbúðarhúsnæði hafi stöðvast. Eftirspurn fer vaxandi og framboð er óbreytt sem jafnan leiðir til verðhækkunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×