Kaupmáttur jókst um 1,4 prósent í janúar ingvar haraldsson skrifar 20. febrúar 2015 09:19 Launavístala Hagstofunnar hefur hækkað um 6,3 prósent á síðustu 12 mánuðum. vísir/vilhelm
Vísitala kaupmáttar launa hækkaði um 1,4 prósent í janúar og stendur í 121,9 stigum samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands. Kaupmáttur síðustu 12 mánuði hefur því aukist um 5,5 prósent. Hækkunin í janúar er breyting frá desember síðastliðnum þegar vísitalan lækkaði um 0,3 prósent. Launavístala Hagstofunnar hækkaði einnig í janúar eða um 0,7 prósent. Síðustu 12 mánuði hefur vísitalan hækkað um 6,3 prósent. Þá útskýrir Hagstofan einnig muninn á vísitölunum tveimur:Launavísitala er verðvísitala sem byggir á gögnum úr launarannsókn Hagstofu Íslands og sýnir breytingar á verði vinnustundar fyrir fasta samsetningu vinnutíma. Vísitalan tekur mið af breytingum reglulegra launa sem greidd eru fyrir umsaminn vinnutíma hvort sem um er að ræða dagvinnu eða vaktavinnu. Tekið er tillit til hvers konar álags-, bónus- og kostnaðargreiðslna sem gerðar eru upp á hverju útborgunartímabili. Hvorki er tekið tillit til tilfallandi yfirvinnu né óreglulegra greiðslna enda er í lögum um launavísitölu ætlast til að breytingar á vinnutíma og samsetningu hans hafi ekki áhrif á vísitöluna. Vísitala kaupmáttar launa byggir á launavísitölu og vísitölu neysluverðs. Almennt eykst kaupmáttur launa þegar laun hækka umfram verðlag en minnkar þegar verðbólga er meiri en launahækkanir. Hafa þarf í huga að kaupmáttur launa er annar en kaupmáttur ráðstöfunartekna.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira