Viðskipti innlent

Tengibygging íþróttamannvirkis í Grindavík hlaut Steinsteypuverðlaunin

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd/aðsend
Steinsteypuverðlaunin 2015 voru veitt í fjórða sinn við hátíðlega athöfn á Steinsteypudeginum 2015 á Grand Hóteli þann 20. febrúar 2015 en þau eru veitt fyrir mannvirki þar sem saman fer frumleg og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi.

Að þessu sinni var það M-laga sjónsteypa í tengibyggingu íþróttamannvirkja í Grindavík sem hlaut verðlaunin. Álit dómnefndar er að þessi útfærsla sýni vel hvernig móta má steinsteypuna og sé skemmtileg tilbreyting við hið hefðbundna form. Byggingin tengir saman íþróttahús, sundlaug og íþróttasvæði utanhúss og er því eins og miðstöð eða hjarta svæðisins og örvar samnýtingu og tengsl þeirra bygginga sem fyrir eru.

Það er Grindavíkurbær sem er eigandi verksins. Um hönnun sáu Batteríið arkitektar og VERKÍS hf., framkvæmd var í höndum Grindarinnar ehf. og Verksýnar en M-laga einingarnar eru Smellinn húseiningar frá BM Vallá. Viðurkenningin er veitt mannvirkinu og öllum þeim komu að hönnun og byggingu.

Valnefnd Steinsteypuverðlaunanna er skipuð eftirtöldum:

Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, formaður nefndar og fulltrúi Steinsteypufélags Íslands

Ólafur H. Wallevik frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Steinþór Kári Kárason frá Listaháskóla Íslands

Björn Marteinsson tilnefndur af Verkfræðingafélagi Íslands

Jóhann Einarsson tilnefndur af Arkitektafélagi Íslands

Það er Steinsteypufélag Íslands sem stendur fyrir verðlaununum. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 2010. Eftirtalin mannvirki hafa hlotið verðlaunin:

2010    Göngubrýr yfir Njarðargötu og Hringbraut

2011    Sundlaugin Hofsósi

2013    Nýja bíó






Fleiri fréttir

Sjá meira


×