Landsnet býður út vinnu við lagningu tæplega 40 km af jarðstrengjum Stefán Árni Pálsson skrifar 24. febrúar 2015 10:42 mynd/landsnet
Útboðsgöng vegna jarðvinnu og lagningar Selfosslínu 3 annars vegar og Hellulínu 2 hins vegar eru til afhendingar í móttöku Landsnets frá og með deginum í dag og skal tilboðum skilað á sama stað fyrir kl. 14, annars vegar miðvikudaginn 18. mars vegna Selfosslínu 3 og hins vegar 20. mars vegna Hellulínu 2. Þetta kemur fram á vefsíðu Landsneta. Selfosslína 3 er 25 km langur 66 kílóvolta (kV) jarðstrengur milli Selfoss og Þorlákshafnar sem á að auka afhendingaröryggi raforku í Hveragerði, Þorlákshöfn og á Selfossi. Á vefsíðu Landsneta segir að rekstraráreiðanleiki vestari hluta svæðiskerfisins á Suðurlandi sé frekar takmarkaður í dag og því verði mikill ávinningur af hringtengingu svæðisins með umræddum streng að mati Landsnets. Ráðgert er að leggja strenginn að mestu meðfram vegum sem fyrir eru á svæðinu og miðast útboðsgögnin við að verkinu verði að fullu lokið 15. nóvember nk. Hellulína 2 er 13 km langur 66 kV jarðstrengur meðfram Suðurlandsvegi frá tengivirki við Hellu að tengivirki við Hvolsvöll. Strengurinn mun auka flutningsgetu og afhendingaröryggi á svæðinu en hann leysir af hólmi núverandi loftlínu, Hellulínu 2 frá 1948, sem er með elstu línum í flutningskerfinu og þarfnast orðið endurnýjunar. Áætluð verklok eru 15. október nk. samkvæmt útboðsgögnum. Útboðsgögn vegna Selfosslínu 3 og Hellulínu 2 eru afhent á geisladisk í móttöku Landsnets frá og með deginum í dag. Tilboð í verkin skulu berast á sama stað, fyrir kl. 14 þann 18. mars í Selfosslínu 3 og fyrir klukkan 14 þann 20. mars í Hellulínu 2, þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira