Endurvekja herkvaðningu af ótta við Rússa Samúel Karl Ólason skrifar 24. febrúar 2015 15:08 Hermönnum í Úkraínu hefur fækkað á undanförnum árum. Vísir/EPA
Öryggisráð Litháen ákvað í dag að grípa aftur til herkvaðningar eftir að fallið var frá henni fyriir nokkrum árum. Tilefni breytinganna eru „breytingar á landfræðipólitískum aðstæðum“. Breytingin er þó sögð vera tímabundin til fimm ára. Í öryggisráðinu eru forseti Litháen, forsætisráðherra, þingforseti, varnarmálaráðherra og yfirmaður hersins. „Við verðum að styrkja varnir ríkisins,“ sagði Dalia Grybauskalté, forseti landsins, við fjölmiðla eftir fund öryggisráðsins. Þetta kemur fram á vef Lithuania Tribune. „Við þessar nýju landfræðipólitísku aðstæður, verður herinn að vera tilbúinn til að verja landið. Jafnvel á friðartímum.“ Herkvaðningin nær til karlmanna á aldrinum 19 til 26, en háskólanemar, einstæðir feður og menn með heilsukvilla eru undanskildir henni. Til stendur að kveða 3.000 til 3.500 manns í herinn á hverju ári. Leiðtogar hersins segja að hermönnum hafi fækkað verulega frá því að herskyldan var afnumin í september 2008. Breytingin mun gera hernum kleyft að fylla í tómarúmið. Á vef Reuters fréttaveitunnar segir að yfirvöld Litháen óttist að Rússland muni beita sér gegn ríkinu. Bætt hefur við þær áhyggjur á síðustu misserum og í desember hélt rússneski herinn stóra æfingu við landamæri Litháen. Þá segja greinendur að Rússar gætu beitt sömu aðferðum og í Úkraínu í Litháen til að draga úr stöðugleika þar.
Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Sjá meira