Segja stöðuna á vinnumarkaði ekki verið betri frá hruni ingvar haraldsson skrifar 25. febrúar 2015 12:26 Atvinnuleysi var 4,4 prósent í janúar og atvinnulausum fækkaði úr 12.400 í janúar árið 2014 í 8.100 í janúar á þessu ári. vísir/vilhelm
Greiningardeild Íslandsbanka segir stöðuna á vinnumarkaði hafi ekki verið jafn góða frá bankahruninu árið 2008. Atvinnuleysi var 4,4 prósent í janúar og atvinnulausum fækkaði úr 12.400 í janúar árið 2014 í 8.100 í janúar á þessu ári. Einstaklingum á vinnumarkaði fjölgaði um 2,8 prósent milli ára. Hlutfall starfandi jókst úr 73,9 prósent í janúar 2014 í 76,8 prósent í janúar árið 2015. Greiningardeildin telur líklegt að vöxtur ferðaþjónustunnar yfir vetrartímann eigi stóran þátt í minnkandi atvinnuleysi. Greinin sé mannaflsfrek og í vaxandi mæli mönnuð með innfluttu vinnuafli. Þá sé einnig uppgangur í nýbyggingum sem dragi úr atvinnuleysi. Að mati greiningardeildarinnar eru einnig líkur á að staðan á vinnumarkaði leiði til talsverðar launhækkana sem auki líkur á hærri verðbólgu. „Ljóst virðist af nýlegum vinnumarkaðstölum að slaki er ekki lengur til staðar í mörgum atvinnugreinum og vinnuaflseftirspurn er talsverð í sumum geirum. Sú þróun styrkir samningsstöðu launþega í komandi kjaraviðræðum og eykur um leið líkur á að niðurstaðan verði talsverð samningsbundin hækkun launa, sem svo aftur leiðir til meiri verðbólguþrýstings en ella.“ Fleiri vinnandi bendir til meiri hagvaxtar Greiningardeildin telur vísbendingar um að eftirspurn eftir vinnuafli sé að aukast hraðar en undanfarin ár. Heildarvinnustundum fjölgaði um 7,4% á milli ára samkvæmt rannsókn Hagstofunnar, sem er mesta aukning vinnustunda í 17 mánuði. Aukning vinnustunda bendir til þess að hagvöxtur verði meiri en bráðabirgðatölur Hagstofunnar hafi gefið til kynna. „Nýjustu tölur um landsframleiðslu ná aðeins til fyrstu níu mánaða síðasta árs, og samkvæmt þeim jókst hún um 0,5% að raunvirði á milli ára. Við teljum að þessar tölur verði endurskoðaðar talsvert upp á við, og að hagvöxtur í fyrra muni reynast nærri 2,0% líkt og Seðlabanki Íslands spáir en það samræmist ágætlega 1,9% fjölgun heildarvinnustunda það árið,“ segir í greiningunni.
Tengdar fréttir Atvinnuleysi var 4,4 prósent í janúar Atvinnuleysi dregst saman og starfandi á vinnumarkaði fjölgar um 9200 milli ára. 25. febrúar 2015 09:42 Atvinnuleysi bitnað einna verst á háskólamenntuðu fólki Skráð atvinnuleysi mældist 3,6% af mannafla í janúar og hafði aukist lítillega frá því í desember. 17. febrúar 2015 10:52 Mest lesið Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Neytendur Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira
Atvinnuleysi var 4,4 prósent í janúar Atvinnuleysi dregst saman og starfandi á vinnumarkaði fjölgar um 9200 milli ára. 25. febrúar 2015 09:42
Atvinnuleysi bitnað einna verst á háskólamenntuðu fólki Skráð atvinnuleysi mældist 3,6% af mannafla í janúar og hafði aukist lítillega frá því í desember. 17. febrúar 2015 10:52