Meirihlutinn í Marinox seldur Samúel Karl Ólason skrifar 26. febrúar 2015 11:29 Marinox vinnur meðal annars að rannsóknum og vinnslu hráefna úr þangi og þara. Vísir/GVA
Gengið hefur verið frá samningi um kaup írska fyrirtækisins Marigot, eiganda Íslenska kalkþörungafélagsins á Bíldudal, á 60% hlut í nýsköpunarfyrirtækinu Marinox ehf., sem er í eigu Matís ohf. og tveggja lykilstjórnenda þar. Í tilkynningu frá Matís kemur fram að gefið verði út nýtt hlutafé fyrir hlut Marigot í kjölfarið. Í tilkynningunni segir að Matís hafi í gegnum tíðina skapað sér öflugt orðspor á vettvangi rannsókna og nýsköpunar í matvælaframleiðslu og líftækni. Oftar en ekki hefur verið um að ræða afurðir sem hafa verið vannýttar eins og þang og þari. Þá starfsemi hefur Marinox byggst upp í kringum. „Matís hefur þannig haft aðkomu að fyrirtækjum sem freistast hafa til þess að búa til verðmæti úr vannýttri auðlind sem aðrir hefðu ekki sýnt áhuga að nýta. Með því að styðja við nýsköpun starfsmanna Matís með þessum hætti er búinn til hvati fyrir rannsakendur hjá fyrirtækinu að fara lengra með sína vinnu og búa til úr henni verðmæta vöru, atvinnulífinu öllu til heilla.“ Marigot keypti hluta Marinox sem heldur utan um rannsóknir og vinnslu verðmætra hráfena úr hafinu. Fyrirtækið verður áfram rekið með sama nafni en nýjum ráðandi hluthafa.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira