Hagnaður Landsbankans tæpir 30 milljarðar Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. febrúar 2015 16:25 Steinþór Pálsson segir eiginfjárhlutfall Landsbankans vera með því besta sem gerist um víða veröld. „
Afkoma Landsbankans á árinu 2014 var góð og fjárhagsstaðan er traust. Eiginfjárhlutfallið er með því hæsta sem þekkist meðal banka um víða veröld og lausafjárstaðan með ágætum, þrátt fyrir að bankinn hafi greitt út 20 milljarða króna arð til hluthafa á árinu, töluverðan útlánavöxt og verulega fyrirframgreiðslu inn á skuld bankans við LBI hf,“ segir Steinþór Pálsson, forstjóri bankans, í afkomutilkynningu. Hagnaður Landsbankans á árinu 2014 nam 29,7 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 28,8 milljarða króna á árinu 2013. Arðsemi eiginfjár eftir skatta á árinu 2014 var 12,5%. Hreinar vaxtatekjur bankans lækkuðu verulega milli ára, eða um 6,2 milljarða króna og vaxtamunur var 2,4% af meðalstöðu heildareigna árið 2014 samanborið við 3,1% árið áður. Hagnaður á fjórða ársfjórðungi 2014 nam 9,8 milljörðum króna samanborið við 6,5 milljarða króna á sama fjórðungi 2013. Heildareignir bankans lækkuðu um 53,1 milljarð króna á milli ára og stóðu í árslok í 1.098 milljörðum króna. Útlán jukust um 6% á árinu og voru í árslok 718 milljarðar króna. Aukningin byggist fyrst og fremst á mikilli aukningu í íbúðalánum. Vanskil útlána voru 2,3% í árslok og lækkuðu verulega á árinu. Í samræmi við sett markmið, hefur eign bankans í hlutabréfum, hlutdeildarfélögum og eignum til sölu lækkað verulega á árinu, eða um 27 milljarða króna. Eiginfjárhlutfall bankans (CAR – Capital Adequacy Ratio) var 29,5% í lok árs 2014 en 26,7% í lok árs 2013. Innlán frá viðskiptavinum voru í árslok 551,4 milljarðar króna og jukust verulega á árinu, en innlán frá fjármálafyrirtækjum minnka að sama skapi. Eigið fé bankans stóð í 250,8 milljörðum króna í árslok og hækkaði um 9,4 milljarða þrátt fyrir að greiddur hafi verið um 20 milljarða króna arður til hluthafa á árinu 2014.
Mest lesið Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent Engar reglur um merkingar á bílastæðum sem rukkað er fyrir Neytendur Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira