Viðskipti innlent

Bein útsending: Ræða Sigmundar Davíðs á Viðskiptaþingi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsdóttir forsætisráðherra.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsdóttir forsætisráðherra. Vísir/Daníel
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er meðal ræðumanna á Viðskipaþinginu sem fram fer á Hilton hóteli í Reykjavík í dag. Vísir tístir beint frá þinginu og sýnir auk þess beint frá ræðu forsætisráðherra klukkan 15.

Viðskiptaþing árið 2015 er haldið undir yfirskriftinni „Tölvan segir nei: Hvernig má innleiða breytingar hjá hinu opinbera?“





Aðalræðumaður er Daniel Cable, prófessor við London Business School. Hann mun fjalla um þær aðferðir sem leiðtogar geta beitt til að innleiða breytingar á farsælan hátt, meðal annars í samtökum með marga ólíka hagsmunaaðila líkt og hjá hinu opinbera.

Þá munu einnig taka til máls formaður og varaformaður Viðskiptaráðs, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins og Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri.

Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi munu að erindum loknum taka þátt í pallborði þar sem rætt verður um getu stjórnmálanna til að sameinast um breytingar. Þingið hefst klukkan 13.00 og stendur til 16:30.

Dagskráin í heild

13:10 Skráning

13:20 Setning fundarstjóra – Guðfinna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri LC ráðgjafar

13:25 Ræða formanns – Hreggviður Jónsson, stjórnarformaður Veritas Capital

13:40 Computer Says No:Creating Sustainable Change – Daniel Cable, London Business School

14:25 Kaffihlé

14:50 Námsstyrkir Viðskiptaráðs – kynning á styrkþegum

15:00 Ræða forsætisráðherra – Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

15:20 Er hægt að horfa á hið opinbera eins og fyrirtæki? – Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins

15:35 Sameiningarferli Ríkisskattstjóra: Leiðarljós breytinga – Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri

15:50 Pallborðsumræður: Geta stjórnmálin sameinast um breytingar? – formenn stjórnmálaflokka á Alþingi

16:20 Samantekt – Sigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður Viðskiptaráðs og forstjóri VÍS

16:30 Móttaka – Ljúfir tónar og léttar veitingar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×