Telja fækkun bréfa hafi alvarleg áhrif á afkomu Íslandspósts Stefán Árni Pálsson skrifar 19. febrúar 2015 14:45 mynd/íslandspóstur
Magnminnkun á bréfum í einkarétti var 8,1% á árinu 2014. Frá árinu 2007 hefur verið viðvarandi minnkun í bréfamagni en á tímabilinu hefur magn bréfa lækkað úr rúmum 50 milljónum árið 2007 í um 27,5 milljónir árið 2014, eða um 45%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandspósti. Spá Íslandspósts gerir ráð fyrir enn frekari magnminnkun á næstu árum en gert er ráð fyrir að hún geti orðið allt að 30% til ársloka 2019. Í tilkynningunni segir: „Þróun bréfamagns hefur haft veruleg áhrif á afkomu bréfadreifingar Póstsins en gera má ráð fyrir að tekjur af bréfadreifingu hefðu verið um 1.800 mkr. hærri á árinu 2014 ef verð hefði breyst í samræmi við vísitölu neysluverðs og magn hefði haldist óbreytt frá árinu 2007. Þegar horft er til ársins 2019 má gera ráð fyrir að tekjur verði um 800 milljónum lægri en árið 2014.“ Á sama tíma og bréfamagn minnkar eru kvaðir um póstdreifingu þær sömu og dreifikerfið heldur áfram að stækka með fleiri póstlúgum. „Burðargjöld eru lægst á Íslandi samanborið við Norðurlöndin, Bretland og Þýskaland samkvæmt nýútkominni skýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar í Svíþjóð en á sama tíma eru hlutfallslega fæst bréf á íbúa hér á landi. Íslandspóstur hefur um nokkurt skeið gert tillögur til stjórnvalda um breytingar á fyrirkomulagi bréfadreifingar til þess að mæta auknum kostnaði og minnkandi tekjum af bréfum, en ekki er búið að fallast á þær breytingar enn sem komið er.“
Mest lesið Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Smíðar sjókvíar og báta á Djúpavogi fyrir fiskeldi Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira