Dominos áfram með kók Samúel Karl Ólason skrifar 2. febrúar 2015 10:23 Birgir Örn Birgisson, framkvæmdastjóri Domino's Pizza á Íslandi, og Árni Stefánsson, forstjóri Vífilfells, skelltu á sig svuntum á Domino's í Lóuhólum eftir að hafa undirritað samstarfssamninginn.
Vífilfell hefur samið við pizzakeðjuna Domino‘s um sölu drykkja fyrirtækisins til ársins 2020, en samstarf fyrirtækjanna nær aftur til ársins 1993. Þá var fyrsti Domino‘s staðurinn opnaður, en nú rekur keðjan 19 staði á landinu og er stærsti endursöluaðili drykkjarvarar í veitingageiranum á Íslandi, samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækjunum. „Þessi samningur er afar mikilvægur fyrir okkur enda er Domino‘s vinsælasti skyndibitastaður landsins og samkeppni um slíka staði er hörð,“ segir Árni Stefánsson, forstjóri Vífilfells. „Það var hins vegar ánægjulegt sem kom fram í samningsgerðinni að þetta er líka mjög mikilvægur samningur fyrir Domino‘s þar sem viðskiptavinahópur þeirrar er stór og tryggur og margir úr þeim hópi geta ekki hugsað sér annað en Coke með pizzunni sinni.“ Velta Domino´s hefur nærri tvöfaldast á síðustu þremur árum og nærri helmingur pantana hjá fyrirtækinu kemur nú í gegnum netið eða Domino‘s appið sem um 47.000 Íslendingar eru með í símanum sínum, samkvæmt tilkynningunni. „Þetta er mikilvægur samningur. Drjúgur hluti viðskiptavina okkar kaupir gos- og vatnsdrykki þegar þeir panta hjá okkur og við erum sannfærð um að pizzurnar bragðist einfaldlega betur með ísköldu Coke,“ segir Birgir Örn Birgisson, framkvæmdastjóri Domino‘s Pizza. „Samstarfið við Vífilfell hefur gengið vel og með þessum samningi munu viðskiptavinir Domino‘s áfram geta pantað Coke, Sprite og aðra drykki frá Vífilfelli.“
Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira