Ræða áhyggjur sínar við ráðherra Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. febrúar 2015 12:07 Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Samtök iðnaðarins óskuðu í morgun eftir fundi Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra vegna skaðlegra áhrifa gjaldeyrishaftanna á íslensk iðnfyrirtæki í alþjóðlegri samkeppni og á hraðvaxandi fyrirtæki á sviði nýsköpunar. Tilefnið eru fréttir um að rótgróið íslenskt iðnfyrirtæki, Promens, hyggist flytja höfuðstöðvar sínar frá Íslandi. Vonast er til að fundurinn með fjármálaráðherra geti farið fram innan fárra daga. Í bréfi sem Samtökin sendu ráðherra, með afriti til forsætisráðherra, lýsa þau sig reiðubúin til samvinnu við stjórnvöld um að greina stöðu mála varðandi samkeppnishæfni alþjóðlegra fyrirtækja hér á landi, leggja mat á umfang þess skaða sem höftin hafa þegar valdið og ekki síst að útfæra mögulegar leiðir til að bæta stöðuna innan ásættanlegs tímaramma. SI leggja þunga áherslu á að sérstaklega verði hugað að aðstöðu íslenskra fyrirtækja í alþjóðlegri starfsemi þegar tímasett og þrepaskipt áætlun um afnám hafta verði sett fram. „Um er að ræða enn eitt dæmið um alvarlegar afleiðingar þess að loka landinu með höftum. Raunveruleg merki sjást nú um að samkeppnisstaða Íslands og möguleikar til uppbyggingar alþjóðlegra fyrirtækja í landinu séu í hættu,“ segir Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri SI, í tilkynningu.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira