Áttræður selur bar í Árbænum og bíður eftir atvinnutilboðum Ingvar Haraldsson skrifar 2. febrúar 2015 13:04 Aðalheiður Guðrún Þórðardóttir, stjórnarformaður 1812, og Guðmundur H. Sigurðsson handsala eigendaskiptin á Blásteini. vísir/valli „
Ég veit ekkert hvort ég sé hættur að vinna,“ segir 82 ára gamli veitingamaðurinn Guðmundur H. Sigurðsson. Guðmundur hefur rekið barinn Blásteinn í Árbænum með syni sínum Jónasi Guðmundssyni undanfarin fjögur ár. Feðgarnir hafa nú selt barinn til félagsins 1812 sem einnig rekur barinn Búálfinn í Breiðholti. Guðmundur segir vel geta verið að hann fari aftur að vinna bjóðist honum starf. „Ég ætla að taka því rólega núna. Nú er kominn tími til að sinna sjálfum sér og konunni meira. Ég hef ekki sinnt henni nóg undanfarið,“ segir Guðmundur og bætir við: „Það sem skiptir mestu máli er heilsan.“ Guðmundur segist ekki vita til þess að margir séu í vinnu á þessum aldri. „Ekki í fullu starfi að minnsta kosti,“ segir hann.Nærri 70 ára starfsævi Guðmundur segist hafa byrjað að vinna fljótlega eftir fermingu. Því spannar starfsævin nærri 70 ár. „Mitt ævistaf var þvottur og hreinsun. Ég rak Efnalaugina Hraðhreinsun sem var Súðavogi 7 í 40 ár. Fönn keypti hana af mér árið 1996. Svo var ég með sendifyrirtæki í 5 ár,“ segir Guðmundur um hvað hann hafi tekið sér fyrir hendur síðustu 70 árin. Aðspurður hvað standi upp úr á starfsævinni segir Guðmundur: „Þetta er bara vinnan. Maður á að sinna sínu starfi og gera það vel. Það hefur maður reynt að gera og ég held að það hafi tekist nokkurn veginn.“Einhverjar breytingar á Blásteini Skúli Júlíusson, einn þeirra sem mun taka við rekstri Blásteins, býst við að halda rekstrinum áfram í álíka mynd. „Það verður áfram sportbar og pítsastaður hér,“ segir Skúli en á Blásteini hefur pítsastaðinn Lautin Pizza verið að finna auk veitingastaðarins Grillhús Árbæjar. Skúli segir þó að einhverjar breytingar verði á rekstrinum en ekki sé tímabært að tilkynna þær að svo stöddu.
Mest lesið Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira