Stofna nýjan 4 milljarða sprotasjóð Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. febrúar 2015 09:16
Landsbréf hf. í samstarfi við SA Framtak GP ehf. hafa lokið 4 milljarða króna fjármögnun á Brunni vaxtarsjóði slhf. Sjóðnum, sem rekinn verður í formi samlagshlutafélags, er ætlað að fjárfesta í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum. Hluthafar í sjóðnum eru Landsbankinn, 7 lífeyrissjóðir, nokkrir einkafjárfestar, auk SA Framtaks GP sem er jafnframt ábyrgðaraðili samlagshlutafélagsins. Landsbréf munu annast rekstur sjóðsins í samstarfi við SA Framtak GP. Sjóðstjórar sjóðsins eru þeir Helgi Júlíusson frá Landsbréfum ásamt Sigurði Arnljótssyni og Árna Blöndal frá SA Framtaki GP. Sjóðurinn mun á næstu 3-5 árum fjárfesta í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum og lögð verður áhersla á gjaldeyrisskapandi fyrirtæki sem hafa burði til þess að vaxa og auka tekjur sínar hratt án þess að kostnaður hækki að sama skapi. Í tilkynningu frá Landsbankanum segir að þær atvinnugreinar sem einkum verður horft til séu: hugbúnaður, veflausnir, afþreyingariðnaður, hátækni, líftækni, orkuiðnaður, sjávarútvegstækni og matvælaframleiðsla. Áhersla verður lögð á að fyrirtækin búi yfir samkeppnisforskoti í formi þekkingar, einkaleyfis eða viðskiptahugmyndar og að frumkvöðlateymið sé framúrskarandi á sínu sviði. Áætlað er sjóðurinn muni fjárfesta í 10-15 fyrirtækjum og að hver fjárfesting verði á bilinu 100 - 500 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að sjóðurinn verði í flestum tilvikum leiðandi fjárfestir og að fulltrúar hans muni setjast í stjórn þeirra fyrirtækja sem fjárfest verður í. „Við sjáum mörg tækifæri í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum . Það á m.a. rætur að rekja til þess að hér er mikið framboð af spennandi fjárfestingakostum en lítið hefur verið um fjármagn,“ segir Árni Blöndal hjá SA Framtaki GP í tilkynningu.
Mest lesið Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira