Heimsferðir, JRJ verktakar og Skinney Þinganes verðlaunuð Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. febrúar 2015 19:23 Á myndinni eru Brynja Baldursdóttir forstöðumaður viðskiptastýringar og þróunar hjá Creditinfo, Sigurlaug Ómarsdóttir frá JRJ-verktökum, Tómas Gestsson framkvæmdastjóri Heimsferða, Aðalsteinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skinney-Þinganess og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Fyrirtækin Heimsferðir, JRJ verktakar og Skinney Þinganes eru framúrskarandi fyrirtæki ársins 2014 að mati Creditinfo. Þau fengu því sérstaka viðurkenningu sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, veitti. Heimsferðir ehf. hækkuðu sig mest á milli ára en fyrirtækið var í 301. sæti af 464 fyrir árið 2013 en er komið í 133. sæti af 577 fyrirtækjum sem eru á lista Framúrskarandi fyrirtækja. Skinney-Þinganes hf. er efst þeirra fyrirtækja sem koma ný inn á listann. Þá eru JRJ verktakar ehf. efstir í sinni atvinnugrein, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, sem þykir erfiðust en í henni er hæst hlutfall fyrirtækja á vanskilaskrá. Þetta er í fimmta sinn sem Creditinfo gefur út listann. Þau fyrirtæki sem teljast framúrskarandi uppfylla ákveðin skilyrði í rekstri, hafa skilað rekstrarhagnaði þrjú ár í röð, eignir eru metnar á að minnsta kosti 80 milljónir króna og eiginhlutfall er 20% eða hærra. Fyrirtækin á listanum fyrir árið 2014 eru 577 talsins sem er um 1,7 % af þeim 34 þúsund fyrirtækjum sem skráð eru á Íslandi. 102 fyrirtæki hafa verið á listanum frá upphafi. Fjöldi framúrskarandi fyrirtækja hefur aukist jafnt og þétt frá því listinn var fyrst birtur fyrir fimm árum síðan en þá komust 178 fyrirtæki á lista. Segja má að hagur fyrirtækja á Íslandi fari batnandi með hverju árinu vegna þess að skilyrðin til að komast á listann hafa verið þau sömu frá upphafi.Nánar um skilyrðin sem fyrirtækin þurfa að uppfylla til að komast á lista:· Að hafa skilað ársreikningum til RSK fyrir rekstrarárin 2011-2013 · Minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum · Að sýna rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð · Að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð · Að eignir séu 80 milljónir kr. eða meira, rekstrarárin 2011-2013 · Að eigið fjárhlutfall sé 20% eða meira, rekstrarárin 2011-2013 · Að vera með skráðan framkvæmdastjóra og stjórnamenn í hlutafélagaskrá · Að vera virkt fyrirtæki samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira