Viðskipti innlent

Vöruskiptajöfnuður jákvæður um 8,1 milljarð

ingvar haraldsson skrifar
Vöruskiptajöfnuður hefur nú verið jákvæður í fjóra mánuði í röð, samtals um 31,6 milljarð króna.
Vöruskiptajöfnuður hefur nú verið jákvæður í fjóra mánuði í röð, samtals um 31,6 milljarð króna. vísir/gva
Vöruskiptajöfnuður í janúar var jákvæður um 8,1 milljarð króna samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofu Íslands. Útflutningur var 50,6 milljarðar króna og innflutningur var 42,5 milljarðar króna.

Í Peningamálum Seðlabanka Íslands sem komu út í gær var bent á að lækkun olíuverðs myndi hafa jákvæð áhrif á vöruskiptajöfnuð.

Vöruskiptajöfnuður hefur nú verið jákvæður í fjóra mánuði í röð, samtals um 31,6 milljarð króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×