Vodafone kvartar til Neytendastofu vegna auglýsinga frá Símanum Stefán Árni Pálsson skrifar 5. febrúar 2015 14:17 vísir/pjetur
Vodafone á Íslandi hefur sent erindi til Neytendastofu þar sem kvartað er undan útvarpsauglýsingum Símans hf. Í tilkynningu frá Vodafone segir að í auglýsingunum sé fullyrt að Vodafone hafi slökkt á hliðrænum útsendingum RÚV og að 70% landsmanna telji Sjónvarp Símans standa framar helsta keppinautnum. „Báðar þessar fullyrðingar eru rangar, villandi og til þess eins fallnar að kasta rýrð á Vodafone og blekkja neytendur. Símanum er fullkunnugt um að lokun á hliðrænum útsendingum RÚV er alfarið ákvörðun RÚV, enda tók Síminn þátt í forvali fyrir lokað útboð RÚV um verkið. Verkefnið sem boðið var út fólst í því að koma á stafrænum útsendingum í stað hliðrænna á landinu öllu. Síminn stóðst forvalskröfur en heltist úr lestinni á viðræðustigi. Vodafone átti hins vegar hagstæðasta tilboð og var því gengið til samninga við félagið. Með hliðsjón af þessari forsögu er fullyrðing Símans um að Vodafone hafi slökkt á hliðrænum útsendingum RÚV sett fram af ásetningi og gegn betri vitund og framsetning hennar til þess fallin að skapa neikvæð hughrif um þjónustu Vodafone.“ Það er mat Vodafone að fullyrðing Símans um að 70% landsmanna segi Sjónvarp Símans standi framar en sjónvarp Vodafone sé röng. „Löng venja er fyrir því að sá sem heldur fullyrðingu sem þessari fram beri sönnunarbyrði fyrir henni. Verður fyrirfram að telja yfirgnæfandi löglíkur fyrir að Símanum takist ekki að sanna fullyrðinguna, enda afar ólíklegt að spurningin hafi verið borin undir 70% landsmanna. Fullyrðingin er því röng og ber að banna hana.“ Vodafone telur því að báðar fullyrðingarnar séu rangar og villandi. „Eru þær til þess fallnar að vera ósanngjarnar gagnvart keppinauti, hafa áhrif á viðskipti og kasta rýrð á vörumerki hans. Því hefur Síminn gerst brotlegur við 2. mgr. 6. gr., b. lið 1. mgr. 9. gr., 14. gr. og a. og e. lið 2. mgr. 15. gr., sbr. 5. gr., laga nr. 57/2005, um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.“
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira