Gísli Gíslason sýknaður af 155 milljóna kröfu Bjarki Ármannsson skrifar 9. febrúar 2015 19:23 Gísli hafði milligöngu um sölu hússins við Skúlagötu 51 til Auro Investment. Vísir/Anton/Anton
Gísli Gíslason lögfræðingur hefur verið sýknaður af kröfum Glitnis, Íslandsbanka og Arion banka í Héraðsdómi Reykjavíkur. Bankarnir kröfðust 155 milljóna króna skaðabóta vegna aðkomu Gísla að sölu húsnæðisins við Skúlagötu 51 árið 2009. Kínverska sendiráðið á Íslandi keypti húsið af félagi í eigu Karls Steingrímssonar athafnamanns, sem oftast er kenndur við Pelsinn, og Arons Péturs, sonar hans, fyrir um 855 milljónir króna. Bankarnir stóðu hinsvegar í þeirri trú að til stæði að selja húsið til indverskra fjárfesta fyrir mun lægra verð, 550 milljónir, gegn því að bankarnir afléttu kröfum sínum af húsinu. Gísli gerði tilboð í fasteignina fyrir hönd fjárfestanna frá Indlandi. Bankarnir stefndu Gísla og segir í stefnu þeirra að honum hefði átt að vera ljóst að verið væri að blekkja bankanna. Héraðsdómur taldi hinsvegar ósannað að Gísli hefði haft vitneskju um blekkinguna og er bönkunum gert að greiða honum eina milljón króna í málskostnað. „Telur dómurinn að ekki hafi verið færðar nægar sönnur á það að stefndi hafi vitað, eða mátt vita, að þessi erindrekstur hans væri liður í ólögmætri blekkingu eiganda fasteignarinnar við að fá veðunum aflétt gegn greiðslu á mun lægri fjárhæð en í raun fékkst við sölu hennar,“ líkt og segir í dómsorðum. „Þá verður ekki fram hjá því litið að stefnendum [bönkunum] var vel kunnugt um efni kauptilboðsins, sem lá til grundvallar yfirlýsingu þeirra, og mátti þeim því vera ljóst að seljandi fasteignarinnar gæti horfið frá því að selja Auro Investment Partners LLC [indversku fjárfestanna] eignina ef hærra tilboð bærist í hana.“ Gísli Gíslason er landsmönnum meðal annars kunnugur sem innflytjandi og áhugamaður um rafmagnsbíla, sem og fyrir áætlanir sínar um að verða fyrsti Íslendingurinn út í geim, en hann á miða í fyrirhugaða ferð geimskutlu Virgin Galactic.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira