Viðskipti innlent

Vísitala byggingarkostnaðar upp um 2,1 prósent

Stefán Árni Pálsson skrifar
Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 3,7%.
Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 3,7%. vísir/pjetur
Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan janúar 2015 er 123,3 stig sem er hækkun um 2,1% frá fyrri mánuði.

Verð á innfluttu efni lækkaði um 2,1%. Vinnuliður vísitölu byggingarkostnaðar hækkaði um 9,9% (2,7%) frá fyrri mánuði.

Hækkunina má fyrst og fremst rekja til þess að um áramótin féllu úr gildi lög nr. 10/2009 um tímabundna endurgreiðslu á virðisaukaskatti af vinnu á byggingarstað og þjónustu hönnuða og eftirlitsaðila.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 3,7%. Vísitalan gildir í febrúar 2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×