Helmingur fullorðinna Japana stundar ekki kynlíf Atli Ísleifsson skrifar 22. janúar 2015 09:46 Um fimmtungur Japana á aldrinum 25 til 29 ára sögðust hafa lítinn eða engan áhuga á kynlífi. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Um helmingur fullorðinna Japana hafa ekki stundað kynlíf síðasta mánuðinn. Þróunin veldur japönskum stjórnvöldum miklum áhyggjum enda þykir fólksfjölgun í landinu nú þegar allt of lág. Nýjasta rannsókn stofnunarinnar JFPA sýnir að einungis 48,3 prósent karlmanna og 50,1 prósent kvenna hafi stundað kynlíf síðasta mánuðinn. Hlutfallið mælist fimm prósent hærra en árið 2012 þegar síðasta rannsóknin var gerð.Breska blaðið Telegraph greinir frá því að Japan hafi lengi barist við það vandamál að of fá börn koma í heiminn. Um 126,6 milljónir manna búa í landinu en fjórðungur þeirra er 65 ára eða eldri, eða 1,1 milljónir fleiri en árið 2012. Fæðingartíðni japanskra kvenna var 1,41 börn á hverja konu sem þýðir í reynd að Japönum er nú að fækka. Ástæður þessa kynlífsleysis eru taldar margar. Þannig sögðu 21 prósent giftra karlmanna að starfs sín vegna væru þeir oft „of þreyttir“ á meðan 24 prósent kvenna sögðu það vera „of erfitt“. Um fimmtungur Japana á aldrinum 25 til 29 ára sögðust hafa lítinn eða engan áhuga á kynlífi. Um þrjú þúsund Japanir tóku þátt í rannsókninni. Haldi þróunin áfram á þessa lund má búast við að Japanir verði einungis um 50 milljónir árið 2100 sem jafngildir fækkun um 60 prósent borið saman við fólksfjöldann árið 2010.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Innlent Sumarveður fyrir sunnan en annars staðar skýjað Veður Fleiri fréttir Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Sjá meira