Telja engan grundvöll til samninga Stefán Árni Pálsson skrifar 26. janúar 2015 17:13
Starfsgreinasamband Íslands (SGS) afhenti í dag Samtökum atvinnulífsins (SA) kröfugerð vegna kjaraviðræðna framundan vegna 16 aðildarfélaga þess annarra en félaga innan Flóabandalagsins (Eflingar, Hlífar og VSFK). Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins. „Kröfur SGS gera ráð fyrir að lágmarki 50% hækkun launataxta á næstu þremur árum, sérstökum launahækkanir til viðbótar í gjaldeyrisskapandi greinum (fiskvinnslu og ferðaþjónustu), viðbótarhækkunum vegna reynslu og menntunar, hækkana eingreiðslna og vaktaálaga, auk annarra krafna einstakra aðildarfélaga,“ segir í tilkynningunni. Það er mat SA að enginn grundvöllur sé til viðræðna við Starfsgreinasambandið um endurnýjun kjarasamninga á grundvelli kröfugerðarinnar. Í henni er ekkert mat lagt á áhrif tugaprósenta launahækkana á verðbólgu, vexti, verðtryggðar skuldir heimila og fyrirtækja, kaupmátt launa og atvinnuleysi. SGS ber skylda til að leggja mat á áhrif fyrrgreindra launahækkana gangi þær yfir allan vinnumarkaðinn. „Ljóst er að kjarasamningar í takti við kröfugerð SGS yrðu fordæmi fyrir aðra kjarasamninga. Hækkanir sem SGS fer fram á myndu ná til alls þorra félagsmanna ASÍ og síðan ganga yfir vinnumarkaðinn allan. Sú leið sem SGS vill fara hefur ítrekað verið reynd á Íslandi með afleitum árangri. Ávinningur launafólks af tugprósenta launahækkunum hefur verið lítill sem enginn, því sambærileg verðbólga hefur fylgt í kjölfarið og gengisfelling krónunnar. Tjón efnahagslífsins af þessari leið hefur verið mikið.“ Í tilkynningunni segir að Samtök atvinnulífsins geti ekki gengið til viðræðna um slíka leið. „Ekki síst vegna þess að við blasir sögulegt tækifæri til að halda áfram að byggja upp betri lífskjör með því að hækka laun í smáum en öruggum skrefum og halda verðbólgu lágri.“
Mest lesið Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Flugu yfir Atlantshafið á fitu og sykri Viðskipti erlent Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira