Nýherji snýr tapi í hagnað Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. janúar 2015 17:03 „
Á undanförnum árum hefur rekstur Nýherja markast af miklum sveiflum sem torvelda samanburð milli ára. Engu að síður er ljóst að síðasta rekstrarár er eitt það besta í ríflega 20 ára sögu félagsins og mjög jákvæður viðsnúningur frá árinu 2013,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja. Fyrirtækið birti ársuppgjör sitt í dag. Heildarhagnaður Nýherja á síðasta ári nam 259 milljónum króna á síðasta ári og var hagnaðurinn 110 milljónir á fjórða fjórðungi. Þetta er algjör viðsnúningur frá árinu á undan þegar heildartap á árinu nam 1.608 milljónum króna en tap á fjórða fjórðungi var 496 milljónum. EBITDA nam 827 milljónum króna á árinu 2014 og 241 milljón króna á fjórða ársfjórðungi, en var 302 milljónir króna árið á undan og 58 milljónir króna á síðasta fjórðungnum árið á undan.Vöru- og þjónustusala á árinu nam 11.572 milljónum króna og 3.315 milljónum á fjórða ársfjórðungi, en var 10.940 milljónir króna árið á undan og 3.052 milljónir á fjórða fjórðungnum. Finnur segir þó að mörg skref séu eftir til að treysta efnahags félagsins. „Þótt stór skref hafi verið stigin á síðasta ári, er umtalsverð vinna eftir, til að treysta afkomu og bæta eiginfjárstöðu félagsins, sem er of lág. Þar horfum við til áframhaldandi hagræðingar í rekstri og breytinga á félagaskipan Nýherja. Aðskilnaður rekstrar TEMPO frá TM Software ehf. er mikilvægt skref í þessari vegferð,“ segir Finnur.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira