Fer yfir það hvernig fyrirtæki geti nýtt sér nýjustu trendin Stefán Árni Pálsson skrifar 13. janúar 2015 16:04 Daniel Levine, forstjóri Avant-Guide Institute.
Aðalfyrirlesari á ÍMARK-ráðstefnunni er Daniel Levine, forstjóri Avant-Guide Institute og einn helsti sérfræðingur heims í að greina trend á mörkuðum. Í erindi sínu mun hann fjalla um hvernig rannsóknir Avant-Guide geta hjálpað fyrirtækjum að sjá fyrir hvaða trend verða ráðandi á markaðnum þannig að þau geti brugðist við þörfum viðskiptavina sinna og skapað sér ný tækifæri. Í ögrandi og síbreytilegu viðskiptaumhverfi eru slíkar upplýsingar afar dýrmætar. Daniel mun sýna dæmi um fyrirtæki úr mismunandi geirum sem hagnast og blómstra með því að hlusta, fylgjast með og fræðast um það sem sem skiptir viðskiptavini þeirra máli. Þá mun hann fjalla um það hvernig fyrirtæki á Íslandi geta nýtt sér þessi sömu trend á auðveldan og frumlegan hátt til að ná athygli, auka sölu og styrkja vörumerki. Skráning fer fram á imark.is Daniel kom einnig fram á ÍMARK fyrir ári síðan og fór þá yfir þau trend sem markaðurinn stóð frammi fyrir og mun hann nú fara yfir hvernig úr rættist. Daniel Levine og fyrirtæki hans Avant-Guide hefur veitt mörgum af stærstu fyrirtækjum heims ráðgjöf og aðstoð við að greina hvað er handan við hornið og nýta sér ný trend. Meðal þessara fyrirtækja eru MasterCard, Deutche Telekom, Samsonite, HBO og NBC. CNN hefur þetta að segja um Daniel Levine: „Levine is the ultimate guru of cool… he has a remarkable ability to distill trends to their essence and articulate them in a way we can all benefit from” Ráðstefnan fer fram fimmtudaginn 15.janúar í sal Arion banka Borgartúni 19. Húsið opnar kl. 8:30 en ráðstefnan hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 12:00. Fundarstjóri verður Guðmundur Arnar Guðmundsson, markaðsstjóri Nova, en hann mun einnig fara yfir helstu trendin í fjarskiptageiranum á Íslandi. Auk hans og Daniel Levine munu eftirfarandi fyrirlesarar flytja erindi á ráðstefnunni: ● Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands, sem mun kynna hagspá Seðlabanka Íslands 2015/2016. ● Dr. Þorlákur Karlsson, rannsóknarstjóri Maskínu, sem mun kynna niðurstöður íslenskrar rannsóknar byggðar á spá Daniels Levine. ● Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvarinnar, sem mun fjalla um nýjustu trendin í hönnun fyrir tímabilið 2015/2016. ● Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Tíska.is, sem fjallar um nýjustu trendin í tísku fyrir tímabilið 2015/2016. ● Halli Friðgeirs, innanhússarkitekt, sem fjallar um nýjustu trendin í innanhússhönnun fyrir tímabilið 2015/2016.
Mest lesið Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Smíðar sjókvíar og báta á Djúpavogi fyrir fiskeldi Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira