„Við fögnum því að íslenska ríkið ætli að hætta að brjóta Evrópureglur“ Stefán Árni Pálsson skrifar 15. janúar 2015 10:36 Valgeir Magnússon, formaður SÍA. vísir/stefán
Félag atvinnurekenda og samstarfsfélag þess, Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA), fagna því að heilbrigðisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um að afnema bann við lyfjaauglýsingum í sjónvarpi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FA. Félögin hafa undanfarin ár bent á að bann við auglýsingum á lausasölulyfjum í sjónvarpi feli ekki eingöngu í sér takmörkun á viðskiptafrelsi, heldur sé það einnig brot á tjáningarfrelsi og rétti neytenda til upplýsinga. Þá stenst bannið ekki skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, en Evrópudómstóllinn hefur dæmt á þann veg í sambærilegu máli. SÍA ritaði Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra bréf vegna málsins í september 2013 og skoraði á ráðherra að aðhafast í málinu, ella yrði að leita atbeina dómstóla eða Eftirlitsstofnunar EFTA vegna málsins. „Við fögnum því að íslenska ríkið ætli að hætta að brjóta Evrópureglur sem því ber að fara eftir,“ segir Valgeir Magnússon, formaður SÍA. „Bannið við lyfjaauglýsingum í sjónvarpi hefur alla tíð verið mjög sérkennilegt. Það eru engin sjáanleg rök fyrir því að taka einn miðil út úr og banna auglýsingar sem eru leyfðar í öllum öðrum miðlum.“ Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir mikilvægt að frumvarpið sé komið fram. Hins vegar hafi áður komið fram tillaga á Alþingi um að afnema bannið og ekki náð fram að ganga. Mikilvægt sé að þingið afgreiði málið nú hratt og vel. „Verði bannið ekki afnumið er við því að búast að hagsmunaaðilar láti á það reyna fyrir dómi. Það er leitt ef fyrirtæki þurfa að fara þá leið til að sækja rétt sem er mjög augljós og myndi auk þess þýða mögulega bótaskyldu fyrir stjórnvöld, sem hafa viðhaldið banninu um árabil þrátt fyrir að vera fullkomlega meðvituð um ólögmæti þess,“ segir Ólafur.
Mest lesið Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Flugu yfir Atlantshafið á fitu og sykri Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira