Bjuggust við gagnrýni vegna hvalabjórsins Aðalsteinn Kjartansson skrifar 15. janúar 2015 12:55 Dagbjartur á brugghúsið Steðja ásamt Svanhildi Valdimarsdóttur.
Einn af eigendum brugghússins Steðja segir að viðbúið hafi verið að Hvalur 2, nýr þorrabjór brugghússins, yrði gagnrýndu. Hann segir þó áhugann vera mikinn. „Við áttum alveg von á einhverri umfjöllun og einhverri gagnrýni líka. Við vorum alveg búin að búa okkur undir það. Við bjuggumst alveg við því,“ segir Dagbjartur Arilíusarson. „Öll þessi umfjöllun erlendis hefur orðið til þess að við fáum gríðarlega margar fyrirspurnir erlendis frá. Við gætum rauninni selt alla bjórana bara út ef við vildum til einstaklinga,“ segir hann en bætir við að bjórinn verði sendur meira og minna allur í Vínbúðina. „Svo tökum við bara ákvörðun í framhaldi af því hvort við höldum áfram með þetta eða ekki.“Sjá einnig: „Hugsandi fólk myndi ekki drekka þennan bjór“ Stefnir þá í að Hvalur 2 verði í boði allan ársins hring? „Það er alveg möguleiki ef að eftirspurnin verður eins og litur út fyrir þá þurfum við allavega að hugsa það hvað við gerum,“ segir Dagbjartur. Til greina kemur að horfa meira á erlendan markað en áður. „Við erum í þannig stöðu í dag að við þurfum að hugsa um alla þá markaði sem við getum og þess vegna þurfum við að velta því vandlega fyrir okkur hvort við eigum að halda þessu áfram eða ekki,“ segir hann. „Það byggir svolítið á því hvort það sé stöðugur markaður erlendis fyrir þennan bjór en áhuginn er rosalega mikill og við höfum fengið svakalega mikið af pöntunum á netinu og víðar.“ Dagbjartur segir að hvalabjórinn sé gerður í takt við þorrann og ekki bara í kynningarskyni. „Þetta er fyrst og fremst fyrir íslenska þorrann og ég hef sagt það í erlendum fjölmiðlum, og notað tækifærið kynnt um leið íslenska þorrann fyrir fólki,“ segir hann. Dagbjartur er sjálfur mikill þorramaður og borðar allt sem þá er boðið upp á. „Ég er fæddur og uppalinn í sveit og ég er mikill þorramaður, borða allt sem á borð kemur,“ segir hann.
Tengdar fréttir Taðreykt hvalseistu notuð í þorrabjórinn Eigendur Brugghúss Steðja í Borgarfirði hafa þróað bjór sem inniheldur taðreykt eistu úr langreyðum. Eitt heilt eista í hverja bruggun. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands gerir engar athugasemdir en það bannaði í fyrra sölu á bjór með hvalmjöli. 9. janúar 2015 07:00 „Hugsandi fólk myndi ekki drekka þennan bjór“ Bresk náttúruverndarsamtök gagnrýna þorrabjór Steðja harðlega. 13. janúar 2015 11:04 Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira
Taðreykt hvalseistu notuð í þorrabjórinn Eigendur Brugghúss Steðja í Borgarfirði hafa þróað bjór sem inniheldur taðreykt eistu úr langreyðum. Eitt heilt eista í hverja bruggun. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands gerir engar athugasemdir en það bannaði í fyrra sölu á bjór með hvalmjöli. 9. janúar 2015 07:00
„Hugsandi fólk myndi ekki drekka þennan bjór“ Bresk náttúruverndarsamtök gagnrýna þorrabjór Steðja harðlega. 13. janúar 2015 11:04