Viðskipti erlent

Vill dreifa internetinu með gervihnöttum

Samúel Karl Ólason skrifar
Elon Musk vill skjóta fjögur þúsund gervihnöttum á sporbraut um jörðina.
Elon Musk vill skjóta fjögur þúsund gervihnöttum á sporbraut um jörðina. Vísir/AFP
Elon Musk, eigandi Tesla og stofnandi SpaceX, tilkynnti á föstudaginn nýjar áætlanir SpaceX um að koma háhraða internettengingu til allra horna heimsins og Mars. Til þess ætlar fyrirtækið að þróa fjögur þúsund smáa gervihnetti sem eiga að hringsóla jörðina í 1.200 kílómetra hæð.

Musk kynnti þetta á kynningarfundi í Seattle á föstudaginn, en hann sagði þar að tekjur af gervihnattanetinu mæti nota til að fjármagna byggð manna á Mars.

Hann segir að hægt væri að byggja hvern gervihnött fyrir minna en eina milljón dala og að þeir yrðu rúm 100 kíló að þyngd. Þá telur hann að það tæki um fimm ár að byggja upp gervihnattanetið og að heildarkostnaður verkefnisins væru um tíu milljarðar dala, sem er meira en þúsund milljarðar króna.

Menn á Mars innan tuttugu ára

Musk vill byggja upp nýlendu á Mars og hann tilkynnti það fyrst árið 2011. Þá sagðist hann ætla að senda menn til rauðu plánetunnar innan tuttugu ára.

Fyrirtæki hans SpaceX hefur undanfarin ár unnið að því að þróa nýja tegund eldflauga sem hægt væri að nota oftar en einu sinni. Þannig væri hægt að draga verulega úr kostnaði við geimskot.

Fyrir skömmu skaut SpaceX þessari nýju tegunda flauga á loft, sem flutti birgðar til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Það tókst, en til stóð að lenda eldflauginni aftur í heilu lagi á fljótandi pramma. Það tókst ekki, en myndband af lendingunni má sjá hér.

SpaceX gerði nýverið samning við NASA um að ferja geimfara til geimstöðvarinnar og byrja fyrirtækir fyrirtækisins árið 2017. Ljóst er að fyrirtækið hefur á skömmum tíma aflað mikillar reynslu og þekkingar í geimferðum, sem mun einungis aukast á næstu árum.

Hér að neðan má sjá myndband frá vefnum The Verge um hvað til þurfi varðandi nýlendu á Mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×