Íslendingar kaupa vörur á netinu fyrir sjö milljarða á ári Stefán Árni Pálsson skrifar 8. janúar 2015 10:29 Hlutfallið er mun lægra en áætlað hlutfall netverslunar í nágrannalöndum okkar. vísir/pjetur
Velta íslenskrar netverslunar var um 3,5 milljarðar króna árið 2013, sem nemur um 1% af smásöluveltu á Íslandi það árið. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn á íslenskri netverslun en það eru Rannsóknasetur Verslunarinnar og Háskólinn á Bifröst sem koma að gerð skýrslunnar. Hlutfallið er mun lægra en áætlað hlutfall netverslunar í nágrannalöndum okkar, þar sem hún er áætluð um 6% af heildarveltu. Áætlað er að Íslendingar kaupi vörur frá erlendum netverslunum fyrir svipaða fjárhæð og nemur veltu innlendrar netverslunar, eða um 3,5 milljarða.Megintilgangur skýrslunnar er að gefa verslunarrekendum yfirsýn yfir þróun íslenskrar netverslunar í samanburði við erlendar netverslanir og leitast við að skýra sóknarfærin. Skýrslan ber nafnið Íslensk netverslun – greining á stöðu og framtíðarhorfur og í henni er er lýst umfangi og þróun íslenskrar netverslunar á síðustu árum og hún borin saman við netverslun í nágrannalöndum okkar. Einnig er fjallað um hvernig ætla má að netverslun þróist á næstu árum og tengsl hennar við rekstur hefðbundinna verslana Ein helsta ástæðan fyrir minna umfangi íslenskrar netverslunar en í nágrannalöndum okkar er talin vera lítill markaður hér á landi sem gerir verslunum erfitt um vik að bjóða vöruverð samkeppnishæft við erlendar stórverslanir. Hin megin ástæðan, sem verslunareigendur nefna, er sú nálægð sem flestir landsmenn hafa við hefðbundnar verslanir. Möguleikar íslenskra netverslana til að stækka felast meðal annars í að ná til stærri markaðssvæða og nýta þar með þær alþjóðlegu tengingar sem netverslun hvílir á.Sífellt dregur úr mun á milli aldurshópa og kynja sem kaupa vörur um netið. Það eru helst konur í elsta aldurshópnum sem kaupa síður um netið en aðrir hópar. Vöruval höfðar þó misjafnlega til mismunandi hópa. Þannig eru fatakaup um netið vinsælli meðal ungra kvenna á meðan ungir karlar kaupa frekar raftæki og tölvubúnað. Höfundar skýrslunnar eru Stefán Kalmansson og Emil B. Karlsson.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Smíðar sjókvíar og báta á Djúpavogi fyrir fiskeldi Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira