Hagvöxtur 5,2% á fyrri árshelmingi Sæunn Gísladóttir skrifar 11. september 2015 09:28 Neysla og fjárfesting dró hagvöxtinn áfram á fyrri árshelmingi Vísir/GVA
Landsframleiðslan á fyrstu sex mánuðum ársins 2015 jókst um 5,2% að raungildi borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2014. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 7,3%. Einkaneysla jókst um 4,4%, samneysla um 1,0% og fjárfesting um 21,2%. Útflutningur jókst um 9% og innflutningur nokkru meira, eða um 13,6%. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar. Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2015, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 5,6% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 3,3% frá 1. ársfjórðungi 2015.Hagvöxtur 1,8% árið 2014Landsframleiðsla jókst að raungildi um 1,8% á árinu 2014 samkvæmt endurmati á niðurstöðum þjóðhagsreikninga. Neysla og fjárfesting dró hagvöxtinn áfram en þjóðarútgjöld jukust um 5,2% á föstu verðlagi. Einkaneysla jókst um 3,1%, samneysla um 1,8% og aukning fjárfestingar nam 15,4% mælt á föstu verðlagi. Útflutningur jókst um 3,1% á sama tíma og innflutningur jókst um 9,8% þannig að þótt verulegur afgangur yrði af vöru- og þjónustuviðskiptum á liðnu ári, eða 124,5 milljarðar króna, dró utanríkisverslun úr hagvexti. Vöxtur fjárfestinga hefur ekki verið meiri frá árinu 2006, en hún jókst árið 2014 um 15,4%, þar af var aukning íbúðafjárfestingar 14,8% og fjárfesting atvinnuveganna 16,3%. Halli á launa- og fjáreignatekjum frá útlöndum var fremur lítill, annað árið í röð, samkvæmt niðurstöðum Seðlabanka. Það ásamt afgangi af vöru- og þjónustuviðskiptum leiddi til jákvæðs viðskiptajafnaðar á árinu 2014. Hann nam rúmum 83,5 milljörðum króna, 4,2% af landsframleiðslu á árinu. Til samanburðar var viðskiptajöfnuður jákvæður um tæpa 124 milljarða árið 2013 á verðlagi þess árs. Viðskiptakjör bötnuðu um 1,8% á árinu 2014 sem ásamt jákvæðum viðskiptajöfnuði varð til þess að þjóðartekjur jukust umfram vöxt landsframleiðslu eða um 3,0%. Árið 2013 jukust þjóðartekjur aftur á móti um 11,9%.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira