Lánshæfismat Landsvirkjunar batnar ingvar haraldsson skrifar 5. maí 2015 09:46 Höfuðstöðvar Landsvirkjunar. vísir/anton
Matsfyrirtækið Moody’s hefur breytt horfum á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr stöðugum í jákvæðar. Samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu endurspegla breyttar horfur þann árangur sem náðst hefur í að styrkja stoðir fyrirtækisins og að bæta fjárhagslegan styrkleika. Þar er helst horft til sterkrar stöðu á orkumarkaði, hagkvæmrar endurnýjanlegar orka og jafnt sjóðstreymi.Sjá einnig: Tuttugu milljarðar í arð á ári Þeir þættir sem koma í veg fyrir enn betri einkunn að svo stöddu eru sagðir vera há skuldsetning, fámennur hópur viðskiptavina, tenging við álverð í raforkusölusamningum, gjaldeyrisáhætta og hlutfall breytilegra vaxta í lánasafninu. Moody’s bendir þó á að fjárhagsleg staða fari stöðugt batnandi og góður árangur sé að nást í að draga úr fjárhagslegri áhættu. Sérstaklega er minnst á þann árangur sem náðst hefur við að draga úr álverðsáhættu með endursamningi við álver Rio Tinto Alcan í Straumsvík, með áhættuvarnarsamningum og með samningum við nýja aðila. Þá nefnir Moody’s jákvæð áhrif þeirrar vinnu fyrirtækisins við að draga úr gjaldmiðla- og vaxtaáhættu í lánasafninu. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir í tilkynningu bætt lánshæfismat vera mikilvægt skref í að bæta aðgengi fyrirtækisins að alþjóðlegum fjármálamörkuðum. „Þessi breyting kemur í framhaldi af jákvæðri þróun í rekstri og auknum fjárhagslegum styrkleika á undanförnum misserum. Landsvirkjun gerir ráð fyrir að þessi þróun muni halda áfram næstu árin,“ segir Hörður.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira