Þorsteinn ráðinn forstjóri Opinna kerfa Atli Ísleifsson skrifar 1. júní 2015 17:10 Þorsteinn G. Gunnarsson var stjórnarformaður Advania, meðstofnandi og stjórnarmaður í Cooori ehf. Mynd/Opin kerfi
Þorsteinn G. Gunnarsson hefur verið ráðinn forstjóri Opinna kerfa frá og með 1. júní. Þorsteinn tekur við starfinu af Gunnari Guðjónssyni sem gegnt hefur stöðu forstjóra frá árinu 2008. Gunnar mun nú snúa sér að öðrum verkefnum. Þorsteinn Gunnarsson er rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands, og með meistarapróf frá University of Washington. Í tilkynningu frá Opnum kerfum segir að Þorsteinn sé ekki ókunnugur Opnum kerfum þar sem hann starfaði frá 1996 til 2008 sem framkvæmdastjóri ráðgjafar- og þjónustusviðs og síðast sem forstjóri. „Þorsteinn var stjórnarformaður Advania, meðstofnandi og stjórnarmaður í Cooori ehf. Hann hefur verið virkur í nýsköpunarsamfélaginu, leiddi sameiningu Klaks og Innovit og er stjórnarformaður sameinaðs félags, Klak-Innovit. Þorsteinn er giftur Herdísi Rafnsdóttur og eiga þau saman drengina Rafn Viðar og Gunnar Smára. Skipulagsbreytingar urðu hjá félaginu í október 2014 þar sem svið voru sameinuð og framkvæmdastjórum fækkað. Í núverandi framkvæmdastjórn félagsins sitja, María Ingimundardóttir, framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs, Guðbrandur R. Sigurðsson, framkvæmdastjóri sölu- & markaðssviðs, Elín Gränz, framkvæmdastjóri mannauðs- & þjónustusviðs, Friðþjófur Bergmann, framkvæmdastjóri vöruþróunar- & verkefnasviðs og Kristján Ólafsson, framkvæmdastjóri fjármála- & innkaupasviðs.“ Opin kerfi var stofnað árið 1985 og fagnar því 30 ára afmæli á þessu ári. „Fyrirtækið hefur meðal annars verið dreifingar- og þjónustuaðili fyrir HP allan þann tíma og hefur á að skipa öflugu teymi reyndra sérfræðinga á flestum sviðum upplýsingatækni með langa reynslu af ráðgjöf, þjónustu og innleiðingu lausna hjá flestum af stærstu og kröfuhörðustu fyrirtækjum og stofnunum landsins. Opin kerfi er samstarfs- og þjónustuaðili Verne Global þar sem hýsingarlausnir fyrirtækisins og innri kerfi eru rekin í einu fullkomnasta gagnaveri heims í dag. Hjá félaginu vinna um 100 manns og árleg velta er um 5 milljarðar króna,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira