Viðskipti innlent

Sölvi Tryggvason er hættur að borga í lífeyrissjóð: Segir lífeyrisgreiðslur skammarlega lágar

ingvar haraldsson skrifar
Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason er ósáttur við hvernig lífeyrissjóðakerfið hefur verið rekið síðustu ár.
Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason er ósáttur við hvernig lífeyrissjóðakerfið hefur verið rekið síðustu ár. vísir/valli
Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður er hættur að borga í lífeyrissjóð. Raunar hætti Sölvi að greiða í lífeyrissjóð fyrir ári síðan. Skuldin er nú komin í innheimtu en Sölvi stendur fastur á sínu.

„Skuldin er ekki hærri en svo að ég gæti borgað hana á morgun. Ég á fyrir henni og hef haldið því til hliðar. Þetta er bara prinsippmál,“ segir Sölvi í samtali við Vísi.

Ómögulegt að gagnrýna kerfið

Í færslu á vefsvæðinu Spyr.is segir Sölvi skammarlegt hvernig komið er fram við eldri borgara þessa lands.

„Við fáum reglulega fréttir af því að ekki megi borga fólkinu sem bjó til þessa sjóði með elju og dugnaði og nú á að njóta ævikvöldsins nema í formi vasapeninga sem telja svo fáar krónur að skömm er. Þeir sem hafa eitthvað út á það að setja eru svo yfirleitt stimplaðir sem kjánar sem ekki skilja það að eftir x-mörg ár verða x-margir orðnir x-gamlir,“ segir Sölvi.

Þá segir Sölvi að ekki megi gagnrýna lífeyrissjóðina án þess að varðhundar stökkvi upp eins og verið sé að gagnrýna börnin þeirra „Þú hlýtur að vera á mjög sérstökum stað í lífinu þegar þú ert það tilfinningalega tengdur íslenska lífeyrissjóðakerfinu að gagnrýni á það sé eins og persónuleg árás á þitt allra nánasta. Nú eða hitt, að einhver á á þig eitthvað misjafnt og þú sért kominn á kaf í spillingu sem þú átt enga leið út úr,“ segir Sölvi.



Skiptir engu þó hann vilji ekki eiga í pítsastöðum

Fjölmiðlamaðurinn bendir á að hann sé barnlaus, eignalaus og hafi engu að tapa. „Það þarf ekki að koma á óvart að ég fæ ekki að rökstyðja það gagnvart neinum innan lífeyrissjóðanna af hverju ég vil ekki borga, heldur þarf ég að eiga það samtal við innheimtustofnun, sem sér um skítverkin.“



Sölvi segir engu máli skipti að félagafrelsi sé í landinu og hagstæðara gæti verið fyrir hann að leggja peningana sjálfur til hliðar í stað þess að láta þá í hendur manna sem vilja kaupi pítsastaði fyrir hans hönd.

Sölvi bætir við hann viti ekki hvað gerist næst. „Ég hef alltaf staðið í skilum í lífinu og veit því ekki hverjar afleiðingarnar verða.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×