Hagnaður VÍS 1,7 milljarðar Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. febrúar 2015 16:04 Sigrún Ragna Ólafsdóttir er forstjóri VÍS. vísir/vilhelm
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri Vátryggingafélags Íslands, segir að hagnaður félagsins á síðasta ári hafi verið góður, einkum vegna góðrar ávöxtunar af skuldabréfum og hlutabréfum. „Afkoma félagsins af vátryggingastarfsemi var hins vegar undir væntingum á árinu og þá sérstaklega afkoma af eignatryggingum og ökutækjatryggingum,“ segir Sigrún Ragna. Hagnaður VÍS eftir skatta nam 1.710 milljónum króna á síðasta ári en var 2.154 milljónir árið á undan. Iðgjöld ársins námu rúmum 16 milljörðum króna og voru svipuð árið á undan, en framlegð af vátryggingarekstri var 46 milljónir króna en var 503 milljónir árið á undan. Fjármunatekjur námu 2.439 milljónum króna en voru 2.631 milljón árið á undan. Stjórn félagsins leggur til að félagið greiði hluthöfum arð sem nemur kr. 1,03 á hlut. Heildarfjárhæð arðgreiðslunnar er um 2.500 milljónir króna. Arðsákvörðunardagur er 12. mars 2015 sem þýðir að skráðir hluthafar í lok dags 16. mars 2015 (arðsréttindadagur) eiga rétt á arðgreiðslu. Arðleysisdagur er því 13. mars 2015 sem er fyrsti viðskiptadagur eftir arðsákvörðunardag og útborgunardagur er 9. apríl 2015.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira