Skora á þingmenn að setja lög um rangar sakargiftir Birgir Olgeirsson skrifar 18. nóvember 2015 13:03 Þórdís Elva Þorvaldsdóttir. Vísir/Vilhelm
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir skorar á þingmenn að setja lög sem miðast að því að kærur fyrir rangar sakargiftir geti ekki verið lagðar fram fyrr en kynferðisbrotamálin sjálf eru leidd til lykta í réttarvörslukerfinu. Þórdís Elva birtir þessa áskorun á Facebook-síðu sinni en fjöldi fólks hefur tekið undir þessa áskorun. Þórdís segir uggvænlega þróun eiga sér stað í samfélaginu sem felst í því að þeir sem leggja fram kæru vegna kynferðisbrots eiga yfir höfði sér að vera kærðir fyrir rangar sakargiftir. Segir Þórdís Elva það hafa enn frekari fælingarmátt fyrir brotaþola.„Augljós tilraun til þess að afvegaleiða rannsókn“ „Starfandi lögmenn hafa bent á að þessi aðgerð sé augljós tilraun til þess að afvegaleiða rannsókn kynferðisbrotamála og draga úr þrótti brotaþola,“ skrifar Þórdís Elva. Hún segir ljóst að mannafli lögreglu sé ekki ótæmandi auðlind og rannsókn á röngum sakargiftum sé til þess fallin að taka tíma og mannskap frá rannsóknum kynferðisbrotamála.Segir rangar sakargiftir óverulegt vandamál „Ítrekaðar rannsóknir sýna að rangar sakargiftir í þessum málaflokki er óverulegt vandamál en kynferðisofbeldi er hins vegar útbreitt samfélagsmein sem snertir hverja einustu fjölskyldu í landinu,“ skrifar Þórdís Elva sem bendir þingmönnum á að það sé nógu erfitt nú þegar að kæra kynferðisbrot. „Kæru þingmenn, það er nógu erfitt að kæra kynferðisbrot nú þegar. Meirihluti slíkra mála eru felld niður og allt of fáir treysta sér til þess að leggja erfiðið á sig. Þess vegna er hér með skorað á ykkur að setja lög þess efnis að kærur fyrir rangar sakargiftir geti ekki verið lagðar fram fyrr en kynferðisbrotamálin sjálf eru leidd til lykta í réttarvörslukerfinu.“ Þingmennirnir Lilja Rafney Magnúsdóttir, Katrín Júlíusdóttir, Birgitta Jónsdóttir og Ásta Guðrún Helgadóttir hafa „lækað“ þessa færslu Þórdísar Elvu.Brynjar Níelsson ekki hrifinn Þingmaðurinn Brynjar Níelsson spyr hins vegar hvaða „endemis vitleysa“ þetta sé? „Eðli málsins samkvæmt er það rannsakað í hverri kæru um kynferðisbrot, eins og um önnur brot, hvort um geti verið að ræða rangar sakargiftir. Skiptir þá engu hvort formleg kæra hafi komið fram um slíkt eður ei. Svo er algerlega banalt að taka þann rétt af fólki að kæra rangar sakargiftir frekar en önnur hegningarlagabrot, sem þungar refsingar liggja við. Það samræmist alls ekki reglum réttarríkisins,“ skrifar Brynjar í athugasemd við færslu Þórdísar Elvu. Segist Brynjar trúa því tæplega að margir þingmenn muni standa að því að leggja fram slíkt frumvarp. Þórdís bendir þó Brynjari á að það sé ekki verið að taka réttinn af neinum um að kæra fyrir rangar sakargiftir. Ætlunin sé að leyfa málum fram að ganga áður en lögð er fram kæra um rangar sakargiftir.Kæru vinir og vinkonur sem farið með löggjafarvald okkar Íslendinga,Ykkar bíður knýjandi verkefni. Yfirgnæfandi...Posted by Þórdís Elva Þorvaldsdóttir on Wednesday, November 18, 2015
Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira