Segir viðtökur íbúa við fluginu hafa verið frábærar Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 11. febrúar 2015 10:00 Paul Kehoe, framkvæmdastjóri Birmingham-flugvallar, og Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.
Bókanir Breta í flug Icelandair frá Birmingham fyrir næstu mánuði eru yfir væntingum, að sögn Andrésar Jónssonar, framkvæmdastjóra Icelandair á Bretlandseyjum. Áætlunarflug Icelandair til borgarinnar hófst 5. febrúar síðastliðinn. „Við erum bara rétt að byrja. Viðtökur íbúa hafa verið frábærar. Það þakka ég góðum undirbúningi starfsfólks míns í Bretlandi og nánu samstarfi við Birmingham-flugvöll. Við höfum trú á að með áframhaldandi markaðssetningu á Íslandi og þeirri þjónustu sem Icelandair hefur upp á að bjóða þá muni þessi flugleið vaxa jafnt og þétt á komandi árum,“ segir Andrés og bendir á að Birmingham sé önnur stærsta borg Bretlands. Íbúar sem búi í klukkustundar fjarlægð frá flugvellinum séu um tíu milljónir.Andrés getur þess að Icelandair muni stytta flugtíma frá Birmingham til níu af fjórtán áfangastöðum flugfélagsins í Bandaríkjunum og Kanada. „Þetta er því mikill ávinningur fyrir fólk í Vestur-Miðlöndum sem áður hefur kosið að keyra suður til London eða norður til Manchester til að finna hentugusta flug vestur um haf. Einnig sjá flugvallaryfirvöld og ferðamálaráð borgarinnar mikil tækifæri í að fjölga heimsóknum íbúa frá Norður-Ameríku til svæðisins.“
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira