Kvis í Sjávarklasann Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. febrúar 2015 09:00 Þær Hugrún og Hödd hafa nú fengið aðstöðu hjá Íslenska sjávarklasanum. Mynd/ Sveinn Speight
Það veittu því margir athygli þegar sjónvarpskonurnar Hugrún Halldórsdóttir og Hödd Vilhjálmsdóttir tilkynntu á Facebook fyrir viku að þær hefðu opnað almannatengslafyrirtækið Kvis. Þær hafa unnið að undirbúningi að stofnun fyrirtækisins um nokkurra vikna skeið. Í gær skrifuðu þær svo undir samning við Íslenska sjávarklasann um leigu á starfsaðstöðu hjá Klasanum á Grandagarði. „Þær hafa verið vonum framar,“ segir Hödd Vilhjálmsdóttir um viðtökurnar sem nýja fyrirtækið hefur fengið. En á hádegi í gær höfðu 2.200 látið sér líka við Facebook-síðu fyrirtækisins. Hugrún segir að þær séu þegar byrjaðar að ræða við mögulega viðskiptavini, en hún hafi ekki tök á að nefna hverjir þeir eru á þessari stundu. „Við erum að bjóða upp á almenna almannatenglaþjónustu. Við leggjum áherslu á samfélagsmiðla og líka kynningarmyndbönd sem eru kannski nýjung fyrir almannatengla. Til dæmis fyrir hópefli innan fyrirtækja, eða í formi stemningarmyndbands fyrir árshátíðir, viðtal við forstjóra fyrirtækja til að koma skilaboðum til starfsfólks eða viðskiptavina,“ segir Hödd og bætir því við að þetta efni megi líka nýta sem kynningarefni fyrir heimasíður eða samfélagsmiðla. Hödd bendir á að það sé ekki bara fjölmiðlareynslan sem nýtist þeim í starfi heldur líka menntunin. Hödd er lögfræðingur að mennt og Hugrún er hagfræðingur. Þær leggja báðar áherslu á að þjónustan verði blanda af gleði og alvöru.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira