Segja ríkisfjármál í góðum farvegi Samúel Karl Ólason skrifar 1. september 2015 10:23 „Fjármagnskostnaður ríkissjóðs á fyrri hluta ársins 2015 var 45,4 milljarðar króna eða um 14 prósent allra útgjalda“ Vísir/Rósa
Heildarútgjöld ríkissjóðs voru innan fjárheimilda á fyrri hluta ársins 2015 og meirihluti fjárlagaliða innan fjárheimilda. Hagfræðideild Landsbankans segir þetta vera mikla breytingu til batnaðar og vonandi vera vísbendingu um að agi við stjórn ríkisfjármála fari vaxandi. Í nýjustu Hagsjá Hagfræðideildarinnar segir að staða ríkissjóðs hafi batnað jafnt og þétt á síðustu árum, eða allt frá hruni. Þó að rekja megi jákvæða niðurstöðu ríkisreiknings síðust tvö ár að miklu leyti til einskiptis- og óreglulegra liða, séu mörg teikn um að þróunin sé jákvæð og á réttri leið. Þá kemur fram í nýju greiðsluuppgjöri ríkissjóðs fyrir fyrri hluta ársins að tekjur ríkissjóðs hafi aukist um 4,6 prósent umfram það sem innheimtist á sama tímabili í fyrra. Þó jukust greidd gjöld um 9,1 prósent. „Greidd gjöld hafa því aukist töluvert meira á fyrri hluta ársins en innheimtar tekjur. Þrátt fyrir þennan mun á tekjum og gjöldum tímabilsins jukust greidd gjöld minna en gert hafði verið ráð fyrir. Það gæti verið vísbending um að aðhald varðandi útgjaldaramma mætti vera meira og að mikið vægi einskiptis- og óreglulegra tekna hafi stuðlað að auknum útgjöldum.“ Í Hagsjánni kemur fram að væntanlega muni ríkissjóður fá verulegar skatttekjur í tengslum við áætlanir um afnám hafta og skattlagningu þrotabúa föllnu bankanna. Þó skuldir ríkissjóðs hafi minnkað er vaxtabyrði skulda veruleg. „Fjármagnskostnaður ríkissjóðs á fyrri hluta ársins 2015 var 45,4 milljarðar króna eða um 14 prósent allra útgjalda og síðustu ár hefur hann numið um og yfir fjögur prósent af landsframleiðslu. Þær miklu skuldir sem söfnuðust upp í kjölfar hrunsins eru ríkissjóði því þungur baggi.“ Gæta þarf þess að þær verulegu skatttekjur sem til koma vegna afnáms hafta og skattlagningu þrotabúanna, hafi ekki óæskileg áhrif á peningamagn í umferð eða önnur áhrif sem gætu stuðlað að þenslu og dregið úr verðstöguleika. „Sagan sýnir hins vegar að stjórnvöld á hverjum tíma hafa átt erfitt með að hemja útgjöld í uppsveiflu og hafa oft á tíðum ýtt undir hagsveifluna í stað þess að vinna á móti henni eins og heppilegast væri. Allar aðstæður eru ríkissjóði mjög hagstæðar nú um stundir og því enn og aftur sérstök ástæða til að vera á varðbergi.“
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira