HB Grandi með rúmlega 10 prósent alls aflamarks Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. september 2015 18:22 Ingunn AK, skip HB Granda. Vísir
Fiskistofa hefur úthlutað 368.500 þorskígildistonnum fyrir komandi fiskveiðiár sem hófst í dag. Á síðasta fiskveiðiári var úthlutað 367.060 tonnum og nemur aukningin á milli ára því tæplega 1500 tonnum. Fimmtíu stærstu fyrirtækin í sjárvarútvegi frá alls 86 prósent allrar úthlutunarinnar í sinn hlut sem er álíka hátt hlutfall og á síðasta ári. Alls fá 418 fyrirtæki eða lögaðilar úthlutað nú eða um 40 aðilum færra en í fyrra. Fram kemur á vef Fiskistofu að úthlutun í þorski er rúmlega 190 þúsund tonn og hækkar um 18.300 tonn frá fyrra ári. Ýsukvótinn hækkar um tæp 5 þúsund tonn og fer í 28.950 tonn. Nokkur aukning milli ára er í úthlutun í flestum kvótategundum en þó er nokkur samdráttur í flatfisktegundum. Úthlutað aflamark er alls 435.650 tonn sem er um 3.500 tonnum meira en á fyrra ári enda þótt síldarúthlutun nú sé um 17 þúsund tonnum minni en í fyrra. HB Grandi fær mest úthlutað til sinna skipa eða um 10.1 prósent af heildarúthlutuninni. Næst á eftir kemur samherji með 5.9 prósent og því næst Þorbjörn hf. 5.5 prósent en þetta er sama röð efstu fyrirtækja og undanfarin ár. Þá fer mest til skipa með heimahöfn í Reykjavík eða 12,4 prósent af heildinni samanborið við 12,9 prósent í fyrra. Næstmest fer nú til Grindavíkur, eða 11,4 prósent af heildinni sem er aukning um eitt prósentustig frá fyrra ári og fleytir þeirri höfn fram úr Vestmannaeyjum sem löngum hefur verið í öðru sæti hvað aflamark varðar. Skip með heimahöfn í Vestmannaeyjum ráða nú fyrir 9,9 prósent úthlutunarinnar, en það felur í sér 0,6 prósentustiga samdrátt frá fyrra ári. Alls fá 534 skip úthlutað aflamarki í upphafi nýs fiskveiðiárs samanborið við 578 á fyrra ári. Það skip sem fær úthlutað mestu aflamarki er Kaldbakur EA 1, en hann fær 8.111 þorskígildistonn eða 2,2 prósent af úthlutuðum þorskígildum. Nánar um úthlutinina á vef Fiskistofu.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira