Microsoft og Google slíðra sverðin ingvar haraldsson skrifar 1. október 2015 12:01 Microsoft og Google hyggjast vinna saman að ákveðnum málum sem snúa að einkaleyfum. vísir/getty
Microsoft og Google hafa samið um að falla frá 18 málsóknum sem fyrirtækin hafa höfðað í gegn hvort öðru vegna deilna um einkaleyfi sem m.a. tengdust snjallsímum og þráðlausu neti. Fyrirtækin sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem kom fram að þau myndu vinna saman að ákveðnum málum er snúa að einkaleyfum. Samkvæmt því sem fram kemur í frétt BBC vilja fyrirtækin síður að deilurnar verði útkljáðar fyrir dómstólum. Stór hluti deilanna hafa komið eftir að Google keypti Motorola Mobility árið 2011 sem hafði í för með sér að fyrirtækið eignaðist fjölmörg einkaleyfi tengdum farsímum og fjarskiptatækni. Google keypti farsímahluta Motorola fyrir 12,5 milljarða bandaríkjadala, um 1.596 milljarðar íslenskra króna en seldi það aftur til Lenonvo fyrir 2,9 milljarða bandaríkjadala, um 370 millljarða íslenska króna. Leitarvélarisinn hélt hins vegar eftir flestum þeim einkaleyfum sem fylgdu með upprunalegu kaupunum.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira