Sigmundur Davíð sendi kveðju í gæsapartý unnustu Björns Inga Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 5. júní 2015 16:45 Björn Ingi og Kolfinna Von eru trúlofuð. Vísir/Daníel
Kolfinna Von Arnarsdóttir almannatengill mun ganga að eiga unnusta sinn Björn Inga Hrafnsson, eiganda Pressunnar og DV, nú í júní. Hún var gæsuð á laugardaginn og var dagurinn viðburðaríkur. Það sem bar hvað hæst var kveðja frá sjálfum forsætisráðherra og heimsókn frá Magga Mix. „Það var rosalega gaman,“ segir Kolfinna í samtali við Vísi. Hún var sótt af tónlistarmanninum Gazman klukkan átta um morguninn og bundið var fyrir augu hennar. Aron Einar Gunnarsson, landsliðsmaður í fótbolta, var í baksæti bílsins og tók allt upp á myndband. Síðan tók hver skemmtiviðburðurinn við á fætur öðrum en stelpurnar ferðuðust um í partýrútuSigmundur Davíð og Maggi Mix voru báðir liður í skemmtidagskrá gæsunar tilvonandi brúðarinnar.Vísir„Það var farið í listflug, svo út að borða saman, farið í bubblubolta, trúbador mætti, alls konar myndbönd sýnd, æskumyndbönd sem vinkonur mínar voru búnar að búa til.“ Hún var einnig látin gera sig að fífli í miðbæ Reykjavíkur. Um kvöldið var vinkonupartý þar sem Kolfinnu barst kveðja frá sjálfum Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra. „Hann sendi kveðju, fallega kveðju,“ segir Kolfinna sem vill ekkert tjá sig nánar um innihald kveðjunnar. Sigmundur mætti þó ekki sjálfur á staðinn en kveðjan var tekin upp á myndband og spiluð í gleðskapnum. Skemmtikrafturinn Maggi Mix sá svo um að gleðja Kolfinnu og vinkonur. Maggi mix kannast vel við það að hafa verið að skemmta í téðu gæsapartíi. Og var þar með sitt hefðbundna prógramm sem alltaf fellur í góðan jarðveg: „Það er náttúrlega þessi klassíska danskennsla, partídanskennsla, ekkert að vinna með vals eða svoleiðis, bara partí. kalla þetta alltaf pizzudansinn. Baka pizzu í þykjustunni, uppistand og syng. Er með partíleiki. Almennt grín og glens,“ sagði gleðigjafinn hinn hressasti.
Mest lesið „Endurtek í sífellu: Ég vil ekki deyja, ég vil ekki deyja“ Áskorun Tíminn sem fór í að ræða perra inni í hreyfingunni með ólíkindum Lífið Átta ára með sinn eigin bíl á bílasýningu á Akureyri Lífið „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Bíó og sjónvarp „Þetta lag minnir mig alltaf á að hafa tapað Idolinu“ Lífið Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Lífið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Þjóðarsálin í reiðhöllinni Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Öxar við ána nú til í salsaútgáfu Tónlist Fleiri fréttir „Þetta lag minnir mig alltaf á að hafa tapað Idolinu“ Tíminn sem fór í að ræða perra inni í hreyfingunni með ólíkindum Átta ára með sinn eigin bíl á bílasýningu á Akureyri Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Sjá meira