Vandi foreldra verður barna Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 7. nóvember 2015 07:00 Sæunn í viðtalsherberginu þar sem hún hittir foreldra sem vilja styrkja tengsl sín við barnið. Örugg tengsl barns við foreldri minnka líkur á andfélagslegri hegðun. Fréttablaðið/Anton „
Við gerðum alvarlegar athugasemdir við geðheilbrigðisstefnuna þegar hún var lögð fram í sumar og lýstum yfir þungum áhyggjum af því að í henni var ekki að finna áætlanir um að tryggja þjónustu við yngsta og viðkvæmasta aldurshópinn frá meðgöngu að tveggja ára aldri þrátt fyrir að að fjöldi rannsókna í taugavísindum bendi til þess að þessi tími hafi gríðarlega mikil áhrif á framtíðarheilbrigði fólks,“ segir Sæunn Kjartansdóttir hjá Miðstöð foreldra og barna. Sæunn nefnir að í nýrri áætlun sem Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra kynnti í byrjun vikunnar sé að finna orðalagið að lengi búi að fyrstu gerð og að góður aðbúnaður barna og jákvæð tengsl við aðra séu mikilvægustu atriði þegar horft er á geðheilbrigði þjóðar til lengri tíma. En það séu orðin tóm. Engin tilraun sé gerð til að útfæra úrræði. „Það er mjög áberandi hér á landi hversu mikil tregða er til að viðurkenna bága stöðu yngstu barnanna sem eiga foreldra sem glíma við tilfinningalegan vanda af einhverju tagi, allt frá kvíða yfir í alvarlegar geðraskanir eða neyslu. Rannsóknir sýna svo að ekki verður um villst að vandi foreldranna verður vandi barnsins. Vandi foreldra bitnar á andlegri og líkamlegri heilsu barna og velferð þeirra. Afleiðingarnar geta orðið veik sjálfsmynd, lök félagsleg færni, kvíði og andfélagsleg hegðun. Börn með örugg tengsl við foreldra sína eru mun betur í stakk búin til að takast á við mótlæti og velja heilbrigðar leiðir þegar á þau reynir.“ Hjá Miðstöð foreldra og barna er foreldrum í vanda hjálpað frá meðgöngu og á fyrsta æviskeiði barnsins. „Markmiðið er að efla tengsl á milli foreldra og barna. Tengslamyndunin hefur mikil áhrif fram á fullorðinsár. Ein helst ógn við hana er vanlíðan foreldra, ekki síst kvíði og þunglyndi“ útskýrir Sæunn. „Hjálpin felst í að veita foreldrum sem eiga von á barni eða eiga barn á fyrsta ári meðferð. Hún er í formi samtalsmeðferðar og barnið kemur með í viðtölin þegar það er fætt. Við fylgjumst með hvernig barni og foreldrum líður, tölum við barnið ekki síður en foreldrana, og leitumst við að skilja eðli vandans.“ Sæunn segir árangur góðan og oft þurfi ekki mikið til, stundum örfá viðtöl til að koma foreldrum og barni á réttan kjöl. „Mjög áreiðanlegar rannsóknir sýna fram á að börn með örugg tengsl eiga betra með að setja sig í spor annarra, vegna þess að foreldrar hafa gert slíkt hið sama við þau. Þau koma þar af leiðandi síður illa fram við aðra sem er hluti af andfélagslegri hegðun.“ Sæunn segir stjórnvöld ekki mjög áhugasöm um árangurinn og mikilvægi þjónustunnar. „Við vitum ekki hvort við lifum eftir áramót. Á hverju ári þurfum við að eyða dýrmætum tíma sem annars færi í meðferðarvinnu í að berjast fyrir starfseminni. Við erum sífellt að sanna tilverurétt okkar, eins og þetta sé prívat áhugamál okkar en ekki nauðsynlegur liður í heilbrigðisþjónustu. Við myndum vilja taka við miklu fleiri fjölskyldum en okkur er mjög þröngur stakkur skorinn. Það er tími til kominn að við horfumst í augu við að það er alvarleg brotalöm í íslensku velferðarkerfi þegar kemur að vanda fjölskyldna með börn frá meðgöngu og fyrstu þrjú til fimm árin.“
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Fleiri fréttir „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Sjá meira