Bjórinn ódýrastur í Kraká og Kænugarði Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 30. júní 2015 09:08 Á listanum eru bæði tekin saman verð yfir það hvað lítill bjór (33 cl) kostar út í búð og svo á barnum. Út frá því er meðalverð bjórsins síðan reiknað. vísir/getty
Þýski ferðavefurinn Go Euro hefur tekið saman lista yfir það hvað bjórinn kostar í 75 borgum víðs vegar um heiminn. Á listanum eru bæði tekin saman verð yfir það hvað lítill bjór (33 cl) kostar út í búð og svo á barnum. Út frá því er meðalverð bjórsins síðan reiknað. Samkvæmt úttektinni er bjórinn ódýrastur í pólsku borginni Kraká og höfuðborg Úkraínu, Kænugarði. Þar er meðalverðið 1,07 pund eða 223 íslenskar krónur. Bjórinn er örlítið dýrari í höfuðborg Slóvakíu, Bratislava, þar sem hann kostar 227 krónur og borgin í fjórða sæti er Malaga þar sem meðalverðið á litlum bjór er 231 krónur. Reykjavík er í 39. sæti á listanum en samkvæmt honum kostar lítill bjór um 206 krónur (0,99 pund) út í búð en 664 krónur á barnum (3,14 pund). Meðalverðið samkvæmt listanum er því um 435 krónur. Á listanum má líka sjá meðaltal þess sem hver landsmaður eyðir í bjór á ári, en samkvæmt útreikningum Go Euro eyða Íslendingar um 107 þúsund krónum á ári í þennan vinsæla drykk.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira