Skora á Alþingi að lækka tryggingagjaldið sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 1. desember 2015 08:46 vísir
Rúmlega 300 stjórnendur úr atvinnulífinu hafa skorað á Alþingi að lækka tryggingagjaldið. Þeir segja að þrátt fyrir að vel gangi í atvinnulífinu og að atvinnuleysi hafi minnkað sé það tryggingagjald sem renni meðal annars til greiðslu atvinnuleysisbóta enn í hæstu hæðum. Árlegt gjald sé um 20 til 25 milljörðum krónum hærra en það ætti að vera. „Engin áform virðast um að lækka tryggingagjaldið árið 2016 þrátt fyrir að atvinnuleysi sé hverfandi. Það hefur verið 3% síðustu 12 mánuði og fer enn minnkandi, en tryggingagjaldið er svipað og þegar atvinnuleysi var 8-9% á árunum 2009-2010. Þessu mótmæla stjórnendur fjölbreyttra fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum út um allt land og hvetja Alþingi til að láta verkin tala og lækka gjaldið,“ segir í áskoruninni. Ítrekað hafi komið fram á undanförnum tveimur árum hjá fulltrúum allra flokka að rétt væri að lækka gjaldið. Þá er bent á að tryggingagjaldið komi harðast niður á litlum og meðalstórum fyrirtækjum þar sem flest ný störf verði til. Fyrirtæki sem sé með tíu starfsmenn í vinnu greiði í raun laun þess ellefta, sem þó sé ekki við störf. Hátt tryggingagjald minnki getu fyrirtækja til að hækka laun eða ráða fleiri í vinnu og takmarki svigrúm fyrirtækja til að stunda rannsóknir, þróun og nýsköpun.
Mest lesið „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Kom ekki á teppið Innlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Innlent Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Innlent Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni Innlent Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Fleiri fréttir Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Sjá meira