Sigldu á ísjaka vestur af Dýrafirði Gissur Sigurðsson skrifar 1. desember 2015 15:54
Engan skipverja sakaði þegar ísfisktogarinn Stefnir ÍS sigldi á ísjaka vestur af Dýrafirði í gærkvöldi. Skipstjórinn segir að þetta hafi farið á besta veg miðað við aðstæður og kom togarinn til Ísafjarðar snemma í morgun. Pétur Birgisson skipstjóri segist hafa vanmetið aðstæður. Hann hafi alls ekki átt von á ísjaka á grunnslóð, eins og hann var að toga á, og svo hafi verið myrkur og öskubylur þegar þetta gerðist. Hann hafi sem betur fer verið að toga þannig að skipið var ekki nema á þriggja mílna ferð, í stað að minnstakosti tíu mílna, hefði togarinn verið á siglingu. Höggið hafi verið eins og hnútur og þegar hann leit út horfði hann á þverhnípann ísvegginn eins og Látrabjarg væri. Hann hafi þegar sett á fullt afturábak þrátt fyrir að trollið hafi verið aftan í togaranum, og þar með tekið áhættu á að veiðarfærin færu í skrúfuna, en það slapp. Við árékssturinn kom talsverð dæld í byrðing skipsins, ofan sjólínu frammi á hvalbak, en ekki leki, og brot úr jakanum féll inn á stefnið og kom með til lands í morgun. Strax og þetta var gengið yfir hafði Pétur skipstjóri samband við stjórnstöð Gæslunnar til að láta vita af jakanum, örðum til varnaðar, og mat hann jakann tíu til 15 metra háan og 30 metra á kant. Verið er að landa úr togaranum og verða skemmdir skoðaðar og metið hvort skipið þarf strax að fara í viðgerð.
Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Innlent Fleiri fréttir Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Fólk kasti atkvæði sínu á stríðsbálið „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Gætu gloprað niður sigrinum eða tryggt sér hann í kvöld Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Piparúða beitt gegn mótmælendum í Skuggasundi Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Notuðu piparúða á mótmælendur Sjá meira