Dallas lagði meistarana að velli | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. desember 2015 09:57 Dirk Nowitzki skorar tvö af 18 stigum sínum gegn Golden State í nótt. vísir/getty
Tíu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Steph Curry lék ekki með Golden State Warriors sem tapaði fyrir Dallas Mavericks á útivelli, 114-91. Þetta var aðeins annað tap Golden State á tímabilinu en liðið hefur verið nær óstöðvandi í vetur. J.J. Barea var stigahæstur í liði Dallas með 23 stig en sex leikmenn liðsins skoruðu 10 stig eða meira í leiknum í nótt. Ian Clark var atkvæðamestur í liði Golden State með 21 stig. Kobe Bryant skoraði 15 stig og tók 11 fráköst þegar Los Angeles Lakers vann góðan sigur á Boston Celtics á útivelli, 104-112. Jordan Clarkson var stigahæstur í liði Lakers með 24 stig en Isiah Thomas skoraði einnig 24 stig fyrir Boston. Jimmy Butler var hetja Chicago Bulls sem vann nauman tveggja stiga sigur, 100-102, á Indiana Pacers. Framlengja þurfti leikinn en Butler skoraði sigurkörfu Chicago þegar 1,2 sekúndur voru til leiksloka. Butler skoraði alls 28 stig í leiknum en Aaron Brooks var stigahæstur í liði Chicago með 29 stig. George Hill fór fyrir Indiana með 20 stig og sjö fráköst.Úrslitin í nótt: Dallas 114-91 Golden State Boston 104-112 LA Lakers Chicago 102-100 Indiana Charlotte 117-122 LA Clippers Orlando 100-93 Brooklyn Toronto 94-91 Washington Minnesota 94-80 Utah San Antonio 112-79 Phoenix Portland 110-103 Denver Sacramento 105-110 PhiladelphiaButler skorar sigurkörfu Chicago gegn Indiana Nowitzki með huggulega troðslu Flottustu tilþrif næturinnar
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira