666 milljóna gjaldþrot félags í eigu Jóns Aðalsteinn Kjartansson skrifar 14. janúar 2015 16:57 Jón komst nýlega í fréttir þegar hann vísaði veitingamönnum sem ráku staðinn Caruso úr einum af húseignum sínum. VÍSIR/VILHELM
Tæplega 666 milljónum króna kröfum var lýst í þrotabú Bör hef., félags sem var í eigu Jóns Ragnarssonar athafnamanns. Félagið sem hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta hét áður Lykilhótel ehf. og stóð í leigustarfsemi og rekstri hótela og gistiheimila. Skiptastjóri búsins, Guðrún H. Brynleifsdóttir, sagði í samtali við Mbl.is að engar eignir fundust í félaginu fyrir utan yfirveðsetta fasteign. Þá upplýsti hún að lífeyrissjóður hafi farið fram á skiptin en stærstu kröfuhafarnir voru Landsbankinn með 384 milljóna kröfu og Byggðastofnun með 213 milljóna kröfu. Fram kemur í umfjöllun Mbl.is að félagið hafi árið 1998 keypt Hótel Gíg á Mývatni. Annað félag, sem skráð er á heimili Jóns, tók svo yfir rekstur hótelsins en það var í febrúar á síðasta ári selt á uppboði til félags í eigu Valdimars Jónssonar, sonar Jóns. Hótelið var síðar selt Keahótelum ehf. Jón komst nýlega í fréttir þegar hann vísaði veitingamönnum sem ráku staðinn Caruso úr einum af húseignum sínum eftir að leigusamningur rann úr gildi. Staðnum var læst og starfsfólki og eigendum veitingastaðarins meinaður aðgangur að húsinu. Jón á langan feril að baki í viðskiptum og hefur oft verið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Hann erfði hlut í Hótel Valhöll á Þingvöllum frá foreldrum sínum og var lengi kenndur við þann stað. Vísir birti ítarlega umfjöllun um feril Jóns í kjölfar Caruso-málsins. Hana má lesa hér.
Mest lesið Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Flugu yfir Atlantshafið á fitu og sykri Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira