Hleypur heilt maraþon í jakkafötum Gunnar Leó Pálsson skrifar 23. júlí 2014 10:00 Pétur Ívarsson hleypur heilt maraþon í jakkafötum í næsta mánuði. mynd/eva ólafsdóttir „
Þetta er í fyrsta skipti sem ég hleyp heilt maraþon í jakkafötum og þetta er örugglega í fyrsta sinn sem maður hleypur heilt maraþon í jakkafötum á Íslandi,“ segir Pétur Ívarsson, verslunarstjóri Boss-búðarinnar í Kringlunni og hlaupari. Hann ætlar að hlaupa heilt maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í jakkafötum til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. „Ég hljóp hálft maraþon í fyrra en maður getur ekki sagt sama brandarann tvisvar og fer ég því helmingi lengra í ár,“ segir Pétur léttur í lund. Hann er þó alvanur hlaupari, hefur hlaupið sjö heil maraþon áður og þykir vegalengdin ekkert mál, hraðinn sé eina málið. „Ég ætla að stilla upp þremur gínum í búðinni og leyfa fólki að kjósa um í hvaða jakkafötum ég á að hlaupa. Ég verð samt í Brooks-hlaupaskóm því ég vil ekki stúta á mér fótunum,“ segir Pétur. Fyrir utan hlaupaskóna verður hann klæddur í jakkaföt og skyrtu með bindi og klút. Þá má segja að maraþonið sé hálfgert gæðapróf fyrir jakkafötin í búðinni. „Já, þau rifnuðu ekki í fyrra þó svo að það hafi rignt og auðvitað eru fötin viðkvæmari þegar þau eru blaut. Ég hef engar áhyggjur af að þau rifni, þó svo að ég viti að þau verði þröng því ég mun hlaupa í fötum sem eru í nýjustu tísku og aðsniðin jakkaföt eru í tísku,“ útskýrir Pétur. Hann ætlar að styrkja Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna enn frekar, því búðin mun bæta við tíu prósentum af safnaðri upphæð, ásamt því að posi frá Styrktarfélaginu verður í búðinni og fólk getur styrkt félagið beint.
Mest lesið Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Lífið Vægar viðreynslur en engir pervertar Lífið Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Lífið Beckham á spítala Lífið Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Lífið F1: The Movie frumsýnd í Egilshöll – sjáðu myndirnar Lífið samstarf Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Laxveiði í net á góðum sumardegi 1993 í Óseyrarnesi Menning Fleiri fréttir Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Sjá meira